fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Orðið á götunni: Lilja vann og hvað svo? – Öldungaráðið stóð að baki henni

Eyjan
Mánudaginn 16. febrúar 2026 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðið á götunni er að Lilja Alfreðsdóttir beri engan ferskan vind með sér fyrir Framsóknarflokkinn þegar hún tekur nú við formennsku af Sigurði Inga Jóhannessyni eftir að hafa verið varaformaður flokksins og ráðherra í þeirri ríkisstjórn sem var hafnað fyrir rúmu ári. Lilja féll þá í kosningu í Reykjavík með einungis 1.600 atkvæði á bak við sig og var fjarri því að ná kjöri.

Hvað hefur breyst síðan? Framsókn heldur áfram að tapa fylgi undir forystu formanns og varaformanns. Og Lilja var varaformaður.

Orðið á götunni er að kjör Lilju til formanns núna muni engu breyta fyrir Framsóknarflokkinn. Flokkurinn er á svipuðum slóðum og VG var fyrir endalokin. Mun Lilju takast að snú flokknum frá brún hengiflugsins? Það er stór spurning. En líkurnar eru því miður ekki með flokknum. Tal um að færa sig inn á miðjuna og um leið að herða stefnu flokksins varðandi einangrunarstefnu með andstöðu við Evrópu gengur ekki upp. Vitanlega langar Lilju í fylgi á miðjunni þar sem valdið liggur nú. En miðjan vill ekki hægri andstæðing við Evrópu. Hún lendir í því að keppa við Miðflokkinn sem var stofnaður út úr Framsókn en er nú margfalt stærri en gamli flokkurinn – sem er trúlega orðinn óþarfur í íslenskum stjórnmálum.

Að færa sig inn á miðjuna og leggja enn fremur áherslu á að vera gegn Evrópu sýnir að nýr formaður veit ekki i hvora löppina hún á að stíga.

Vitanlega langar hana í fylgið á miðjunni en það er ekki í boði. Þá verður hún að keppa við Miðflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn um hver getur yfirboðið innihaldslausa andstöðu við framtíðina og Evrópu.

Það sem blasir við eftir þessar formannskosningar er það að fráfarandi formaður, Sigurður Ingi Jóhannsson, varð undir en öldungaráðið vann. Guðni Ágústsson, sá áður skemmtilegi öldungur, hefur lengi verið málpípa valdafólksins í Framsókn sem nú skiptir mestu máli á Sauðárkróki. Þeir sem vildu Lilju voru Þórólfur, Davíð frændi og Guðni. Þeir gerðu sitt og þeir unnu. Allir á áttræðisaldri. Spyrja má hvort það sé framtíð flokksins þóknanlegt.

Lilja hefur sagt að hún verði eins og þjálfari liðs. Æ, æ. Hún er vitanleg ekki í því liði sem tekur til máls á alþingi vega þess að hún er ekki þingmaður, var felld í síðustu kosningum, og þarf að bíða eftir næstu kosningum til að komast á þing að nýju. Það ekkert öruggt um það framhald.

Nýr formaður ætlar að sýna styrk í kornandi sveitarstjórnarkosningum. Hví gerði hún þá ekkert sem varaformaður? Mun fylgi B í Reykjavík aukast úr 2,5 prósentum við að Lilja hafi hætt að vera varaformaður en sé orðinn orðið formaður Framsóknar?

Orðið á götunni er: NEI.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki