fbpx
Fimmtudagur 05.júní 2025
Eyjan

Orðið á götunni: Kemur týndi sonurinn heim í Framsókn?

Eyjan
Þriðjudaginn 3. júní 2025 19:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðið á götunni er að forystufólki stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi sé illa brugðið eftir að þjóðarpúls Gallups sýndi áþreifanlega að þorri kjósenda hefur alls engan áhuga á að kjósa þessa flokka eða veita þeim og baráttumálum þeirra nokkurt brautargengi.

Sjálfstæðisflokkurinn er fastur í kringum 20 prósentin, Miðflokkurinn er vel undir 10 prósentum og Framsókn hefur aldrei mælst minni, stefnir hraðbyri undir fimm prósent sem hefði þær afleiðingar að flokkurinn myndi þurrkast út af þingi.

Á sama tíma fer Samfylkingin með himinskautum og mælist með meira en 30 prósenta fylgi, Viðreisn er nálægt kjörfylgi sínu, en í kosningunum í nóvember vann flokkurinn glæstan sigur. Flokkur fólksins mælist með 7,5 prósent og samtals eru ríkisstjórnarflokkarnir með 52,6 prósenta fylgi en sjálf ríkisstjórnin nýtur stuðnings 67 prósenta kjósenda.

Orðið á götunni er að forystufólk stjórnarandstöðunnar þurfi ekkert að klóra sér í hausnum til að átta sig á því hvers vegna Sjálfstæðisflokkurinn, Miðflokkurinn og Framsókn eru svona haltrandi og áttavillt í stjórnarandstöðunni.

Við öllum blasir að Framsóknarflokkurinn er forystulaus flokkur. Allir vænlegir formannskandídatar féllu af þingi í kosningunum í nóvember. Flokkurinn situr uppi með Sigurð Inga Jóhannsson sem hvorki höfðar til almennra kjósenda né flokksmanna sjálfra.

Sjálfstæðisflokkurinn er klofinn í herðar niður. Guðrún Hafsteinsdóttir hefur ekki náð að treysta stöðu sína og situr m.a. enn uppi með þingflokksformann sem hún vill skiljanlega ekki sjá. Ekki er að sjá að flokkurinn hafi náð neinum áttum öðrum en þeim að styðja blint við forréttindakröfur útgerðaraðalsins í landinu, nokkuð sem þorra þjóðarinnar misbýður.

Miðflokkurinn er ekki klofinn en hann nýtur þess ekki beinlínis að einna mest áberandi þingmenn hans eru kenndir við Klaustur og dónaskap.

Orðið á götunni er að dólgsleg framkoma Framsóknarflokkanna þriggja í þinginu virki öfugt á kjósendur og ekki er annað að sjá en að skoðanakannanir staðfesti það. Þingmenn þessara flokka hafa beitt málþófi og hvers kyns tafaleikjum í nánast öllum málum. Nú liggur nokkurn veginn fyrir að þinga verður langt fram á sumar þannig að þegar upp er staðið hefur málþófið og deila stjórnarandstöðunnar um keisarans skegg ekki skilað öðru en því að ræna þingmenn sumarleyfum og jafnvel sumarvinnu því að þegar upp er staðið fara þingmál ríkisstjórnarinnar í gegn.

Orðið á götunni er að krísan í Framsókn sé svo alvarleg að rótgrónir flokksmenn hafi nú miklar áhyggjur af því að í næstu kosningum fari fyrir flokknum eins og fór fyrir Vinstri grænum í síðustu kosningum. Spurt er hvað sé til ráða? Vitað er að Lilja Alfreðsdóttir hefur hug á formennsku en hún er utan þings og því er rödd hennar hjáróma. Einhverjir horfa til Höllu Hrundar Logadóttur en það vinnur gegn henni að hún er reynslulítil og svo finnst mörgum Framsóknarmanninum ekki gott að áður en hún náði inn hjá Framsókn hafði hún reynt að komast á lista hjá bæði Samfylkingunni og Viðreisn. En allt er þegar þrennt er.

Ingibjörg Isaksen horfir vonaraugum á formannsstólinn, auk þess sem kaupfélagsstjórinn hjá Kaupfélagi Skagfirðinga vill fá sinn mann, Stefán Vagn Stefánsson, á toppinn í flokknum. Kunnugir segja þau þó ekki formannslega vaxin.

Þá hefur Einar Þorsteinsson, fyrrverandi borgarstjóri, verið nefndur en afleikur hans í byrjun árs þegar hann ofplottaði og hafði af sjálfum sér borgarstjórastólinn þykir ekki hafa verið sterkur, auk þess sem hann er, líkt og Lilja, utan þings sem þykir mikill ókostur.

Orðið á götunni er að rembihnúturinn hjá Framsókn sé slíkur að ómögulegt verði að leysa hann og líklegasta niðurstaðan verði einfaldlega: „Er ekki bara best að hafa Sigurð Inga …?“ Einhverjir gantast með að eina raunhæfa lausnin í raunum Framsóknarflokkanna þriggja sé að þeir einfaldlega sameinist, enda fátt sem greinir þá að. Það gæti þá verið undir forystu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og væri þá týndi sonurinn kominn heim í Framsókn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkar sem eru á móti sjálfum sér

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkar sem eru á móti sjálfum sér
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Dauðinn og fíknin

Óttar Guðmundsson skrifar: Dauðinn og fíknin
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Steinunn Ólína: Velkomin til Íslands

Steinunn Ólína: Velkomin til Íslands
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Gunnar Smári um uppgjörið í Sósíalistaflokknum – „Ég var búinn með minn tíma“

Gunnar Smári um uppgjörið í Sósíalistaflokknum – „Ég var búinn með minn tíma“