fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Eyjan

Þingmaður segir stjórnvöld bregðast millistéttinni – spyr hví bændur þurfi að borga miklu hærri vexti en fyrirtæki í sjávarútvegi

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 5. september 2023 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórnvöld hafa skilið millistéttina eftir á berangri nú þegar vaxtahækkanir skella á barnafjölskyldum af fullum krafti, skrifar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, í aðsendri grein á Eyjunni.

Hún segir stjórnvöld einungis hafa verið tilbúin að beita húsnæðis-, vaxta- og barnabótum til að verja þá sem lakast standa en skilið aðra eftir, fyrstu kaupendur og barnafjölskyldur sem séu millistéttin í landinu.

Þorbjörg Sigríður segir verðbólgu geisa víða um heim en stóra spurningin sé hvers vegna það þurfi margfalt hærri vexti til að kæla hana á Íslandi en annars staðar? Í dag sé þetta rammíslenska vandamál stærsta lífskjaraspurning almennings. Íslenskt vaxtastig nálgist núna það rússneska. Sá samanburður sé nærtækari en að bera íslenska vexti við vexti á evrusvæðinu. Hún varpar fram þeirri spurningu hvort það geti talist heilbrigt?

Hún segir það vera verkefni stjórnmálanna að rýna hvaða hlutverk krónan spilar í hinum ógnarháu vöxtum. Þegar vaxtahækkanir hófust hafi rúmur fjórðungur lántakenda verið með óverðtryggð lán á breytilegum vöxtum. Í ár muni 4500 heimili bætast við þennan hóp og renna úr skjóli fastra vaxta. Í því sambandi verði að hafa í huga að aldrei hafa fleiri keypt sér sína fyrstu íbúð en á árunum 2020 og 2021. Fyrstu kaupendur og millistéttin eigi hins vegar ekkert skjól hjá ríkisstjórn í landi þar sem meðalvextir á húsnæðislánum bankanna eru 10,88%, margfalt hærri þekkist en innan evrusvæðisins.

„Vaxtahækkanir bitna harðast á ungu fólki og barnafjölskyldum. Í umræðu um vexti af lánum þarf alltaf að hafa í huga að staða fólks er hvorki jöfn hvað varðar tekjur né um það á hvaða æviskeiði það er statt. Fyrstu kaupendur finna höggin af vaxtahækkunum dynja á sér núna af fullum þunga. Það gera barnafjölskyldur líka. Þetta er millistéttin. Ríkisstjórnin hefur hins vegar aðeins viljað beita húsnæðis-, vaxta- og barnabótum til að verja þau sem lakast standa en hefur skilið aðra eftir.“

Tvær þjóðir

Þorbjörg bendir á að stór hluti fyrirtækja starfar ekki lengur í krónuhagkerfinu heldur hefur valið að gera upp í öðrum gjaldmiðli. „Það er fullkomlega skiljanlegt. Þessi fyrirtæki vilja starfa í stöðugra umhverfi og taka ekki á sig þær vaxtahækkanir sem skella núna endurtekið á restina af þjóðinni. Hluti atvinnulífsins starfar í hagstæðara lánaumhverfi en annar hluti er fastur í lánaumhverfi krónunnar.“

Hún segir að áhugavert hafi veið að heyra Þór Sigfússon, stjórnarformann Sjávarklasans, segja að íslenska krónan væri ekki hamlandi fyrir samkeppnishæfni íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja – enda séu öll helstu fyrirtækin komin út úr þeim gjaldmiðli. „Í því felst að krónan truflar sjávarútvegsfyrirtækin ekki lengur. Til þess að tryggja samkeppnishæfni var krónan einfaldlega yfirgefin.“

Stóra spurningin sé hvers vegna öðrum fyrirtækjum og almenningi bjóðast ekki sömu tækifæri. Hvers vegna búi bændur t.d. við önnur lánskjör en fyrirtæki í sjávarútvegi? Sársaukafullar vaxtahækkanir núna bitni þess vegna líka mjög misjafnlega á fyrirtækjum. Þetta sé á engan hátt birtingarmynd þess að samfélagið allt sé að taka á sig afleiðingar verðbólgunnar – eða að við séum öll saman í þessu.

„Óbreytt staða hvað varðar krónuna þýðir að tækifærin verða ekki jöfn. Að það er ekki jafnt gefið. Umræða um húsnæðislán, verðbólgu og vexti í leikkerfi íslensku krónunnar snýst þess vegna að miklu leyti um jöfn tækifæri og um réttlæti. Og þó að vandinn verði ekki leystur í þessu óveðri sem núna geisar þá þurfa stjórnmálaflokkar líka að geta horft til framtíðar. Það er einfaldlega hluti af því að vilja bjóða næstu kynslóð betri tíð,“ skrifar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir.

Grein hennar í heild má lesa hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum