Styrkir til tannréttinga munu nær þrefaldast frá og með morgundeginum, 1. september.
Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins kemur fram að með samningi Sjúkratrygginga Íslands og tannréttingasérfræðinga sem undirritaður var í lok júlí hafi skapast forsendur til að auka greiðsluþátttöku ríkisins í tannréttingum. Auk samningsins mun reglugerð Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra, taka gildi á morgun, en hún kveður á um breytta greiðsluþátttöku sjúkratrygginga vegna tannréttinga í samræmi við samninginn.
Samningurinn er til þriggja ára og tekur til tannréttingaþjónustu á stofum tannréttingasérfræðinga fyrir sjúkratryggða einstaklinga. Með samningnum er fylgt eftir markmiðum ríkisstjórnarinnar um að draga úr kostnaði sjúkratryggðra vegna heilbrigðisþjónustu. Meðal annars er kveðið á um samstarfsnefnd sem stuðlar að auknu samstarfi og samtali milli hagaðila og tekur á álitamálum sem upp koma varðandi framkvæmd samningsins. Jafnframt er kveðið á um virka þátttöku í þróun stafrænna lausna, nýrrar tækni og nýsköpunar sem leiðir til aukinnar hagkvæmni og gæða í þjónustu.
„Styrkur til meðferðar í bæði efri og neðri góm hækkar úr 150.000 kr. í 430.000 kr og styrkur vegna tannréttinga sem krefjast einungis meðferðar í efri eða neðri gómi hækkar úr 100.000 kr. í 290.000 kr. Styrkir til tannréttinga hafa staðið óbreyttir frá árinu 2001 og því er afar ánægjulegt að geta tekið þetta mikilvæga skref samhliða gildistöku samnings um tannréttingar sem var forsenda þess að hægt var að hækka styrkina. Með hækkun styrksins erum við að draga úr greiðsluþátttöku almennings og jafna aðgengi að þjónustunni,“ segir í færslu heilbrigðisráðherra á Facebook um tímamótin nú fyrir stundu.