fbpx
Laugardagur 18.maí 2024
Eyjan

Skagafjörður með eitt besta 5G samband á landinu

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 27. mars 2023 15:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vodafone hefur unnið að uppbyggingu 5G kerfis á Íslandi og hefur nú lokið uppsetningu á tveimur 5G sendum í Skagafirði. Sendarnir eru á Hegranesi og inni á Sauðárkróki. Skagafjörður er því nú með eitt besta 5G samband á landinu. „Starfsmenn okkar hafa verið í vinnu síðustu vikurnar við uppsetningu á 5G sendum á svæðinu. Síðustu ár hefur Vodafone einnig unnið að eflingu 4G á svæðinu meðal annars með uppsetningu á nýjum sendastöðum ásamt uppfærslu á sendum. Því hafa tengingar í Skagafirði verið stórbættar fyrir íbúa svæðisins sem og ferðamenn. Í haust stefnum við á að klára innleiðingu á svokölluðu VoWIFI, sem þýðir að notendur munu geta sett upp og móttekið hefðbundin símtöl yfir Wifi. Þessi tækni getur komið sér vel á bæjum og sumarhúsum þar sem ljósleiðaratenging er til staðar en ekki gott farsímamerki innanhúss. Við erum afar ánægð með þessa stórbættu þjónustu í Skagafirði og hvetjum íbúa til að setja sig í samband við okkur ef þá vantar ráðgjöf varðandi hverskonar heimatengingar henti þeirra staðsetningu best,“ segir Bjarni Freyr Guðmundsson, rekstrarstjóri Vodafone á Norðurlandi. „Ég fagna því að Vodafone hafi sett upp 5G senda í Skagafirði og eflt 4G sambandið samtímis. Það skiptir íbúa Skagafjarðar og þá fjölmörgu ferðamenn og aðra gesti sem sækja héraðið heim miklu máli að geta verið í tryggu og góðu sambandi sem víðast. Þá er afar gott að Vodafone sé að horfa til lausna sem tryggja betri móttöku á hefðbundnum samtölum yfir Wifi þannig að unnt sé að nýta ljósleiðartengingar til að treysta farsímamerki innanhúss þar sem þess er þörf,“ segir Sigfús Ingi Sigfússon, sveitastjóri Skagafjarðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Þeir slá úr og í

Þorsteinn Pálsson skrifar: Þeir slá úr og í
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Hrund – Sömu gildi og byggðu upp Ísland eru lykillinn að framtíðinni

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Hrund – Sömu gildi og byggðu upp Ísland eru lykillinn að framtíðinni
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Kolbrún komin með nóg af bókhaldslykla-kraðaki og segir að borgin eigi ekki að rannsaka sig sjálf í umdeildu málunum

Kolbrún komin með nóg af bókhaldslykla-kraðaki og segir að borgin eigi ekki að rannsaka sig sjálf í umdeildu málunum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Hrund – Endurreisa þarf forgang almennings til orku hér á landi

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Hrund – Endurreisa þarf forgang almennings til orku hér á landi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Áhugafólk um okur á Íslandi

Sigmundur Ernir skrifar: Áhugafólk um okur á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Dagur hlessa á Guðlaugi Þór – Hafi nú tekið skoðun Dags upp á sína arma sem hann hafi skammast yfir lengi

Dagur hlessa á Guðlaugi Þór – Hafi nú tekið skoðun Dags upp á sína arma sem hann hafi skammast yfir lengi