Róbert Marshall lét af störfum sínum sem upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar nú um áramót. Hann var ráðin tímabundið til starfa fyrir forsætisráðneytið árið 2020 en tók sér launalaust leyfi frá vinnu til þess að reyna fyrir sér í prófkjöri VG í Suðurkjördæmi. Þar hlaut hann ekki brautargengi en Róbert er fyrrum alþingismaður fyrir Samfylkinguna og síðar Bjarta framtíð.
Í frétt Mbl.is er haft eftir Róberti að hann muni snúa sér að leiðsögn fyrir Ferðafélag Íslands.