fbpx
Miðvikudagur 15.apríl 2026
Eyjan

Bjarni vonast til að ríkið fái rúmlega 100 milljarða fyrir sölu á Íslandsbanka

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 2. febrúar 2021 07:58

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bjarni Benediktsson, efnahags- og fjármálaráðherra, vonast til að ríkissjóður fái 119 milljarða króna, hið minnsta, fyrir sölu á Íslandsbanka en stefnt er að sölu 25-35% af eignarhluta ríkisins í sumar.

Morgunblaðið skýrir frá þessu. Haft er eftir Bjarna að stefnt sé að því að framkvæma útboðið um mánaðamótin maí/júní, líklega verði það í júní en málin skýrist á næstu vikum. Hann sagði að leitast verði við að eignaraðildin verði dreifð eftir söluna. „Svo er ég líka að vonast til að með lækkandi vöxtum og fleiri fjárfestingarkostum haldi sú þróun áfram að fleiri taki þátt á hlutabréfamarkaði og að hér sé kominn fram kostur sem geti stutt þá þróun,“ er haft eftir honum.

Morgunblaðið segir að á opnum netfundi með Bjarna hafi komið fram að hann telji æskilegt að hægt verði að kaupa hluti fyrir nokkra tugi þúsunda í útboðinu og að Bankasýsla ríkisins muni skoða þessa hlið málsins. Lægri þröskuldar muni auka þátttöku almennings í útboðinu.

Hann sagðist vænta þess að ríkið fái 119 milljarða, hið minnsta, fyrir allan hlut sinn í bankanum sem er alfarið í eigu ríkisins. 119 milljarðar er sú fjárfesting sem lagt hefur verið í til að örva efnahagslífið vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar.

„Ég held að það sé alveg óhætt að segja að þar sem bankinn er með tæplega 190 milljarða eigin fé í dag hljótum við að hafa væntingar til þess, þegar allur bankinn hefur verið seldur, að við fáum að minnsta kosti fjárhæð sem jafngildir þessu átaki. Þá dregur það úr lánsfjárþörf sem nemur slíkum fjárhæðum,“ er haft eftir Bjarna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Landskjörstjórn hlýtur að segja af sér – stigin inn á hið pólitíska svið

Landskjörstjórn hlýtur að segja af sér – stigin inn á hið pólitíska svið
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Ekki lengur hægt að þagga niður í konum

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Ekki lengur hægt að þagga niður í konum
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Engin dýrtíð á Vopnafirði – allt skrifað

Þorsteinn Pálsson skrifar: Engin dýrtíð á Vopnafirði – allt skrifað
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fyrrum þingmaður segir engan mun á Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum – „Þetta er hættuleg þróun sem ungir karlmenn falla fyrir um allt land“

Fyrrum þingmaður segir engan mun á Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum – „Þetta er hættuleg þróun sem ungir karlmenn falla fyrir um allt land“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson: Baudenbacher veður villu vegar – Ef ESB og Ísland telja aðildarumsóknina í gildi þá er hún í gildi

Davíð Þór Björgvinsson: Baudenbacher veður villu vegar – Ef ESB og Ísland telja aðildarumsóknina í gildi þá er hún í gildi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson: Ef NATO fer í skrúfuna er varnarsamningurinn við Bandaríkin brostinn

Davíð Þór Björgvinsson: Ef NATO fer í skrúfuna er varnarsamningurinn við Bandaríkin brostinn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Hvað er sannleikur?

Jón Gnarr skrifar: Hvað er sannleikur?