fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

„Ríkisstjórnin er ekki að gera neitt“ segir Þorgerður

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 10. ágúst 2020 07:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Haustið nálgast, skólar fara að byrja, fólk snýr aftur til vinnu úr sumarfríum og ýmis önnur starfsemi fer af stað í samfélaginu. Á sama tíma sækir kórónuveirufaraldurinn í sig veðrið. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir að hafa ekki áform sín uppi á borðum fyrir haustið og segir að stjórninni sé ekki lengur stætt á að skýla sér á bak við embættismenn, landlækni, sóttvarnalækni og lögreglu og vísa til þeirra þegar svara er krafist um stefnuna varðandi faraldurinn.

Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag. Fram kemur að Þorgerður telji að ógagnsæið sé farið að valda spennu á milli þjóðfélagshópa, til dæmis atvinnugreina. Hún tekur undir orð Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, að aðalmálið sé að skólastarf geti hafist á nýjan leik á tilsettum tíma.

„Það hlýtur að vera til plan hjá ríkisstjórninni um hvernig á að opna skólana, ekki bara leik- og grunnskóla, heldur einnig framhaldsskóla. Ég hræðist félagslegar afleiðingar þess ef skólarnir verða ekki opnir mjög lengi.“

Er haft eftir Þorgerði.

Þríeykið hefur verið í framlínunni varðandi faraldurinn. Mynd:Ernir

Kári Stefánsson var í viðtali í Sprengisandi á Bylgjunni í gær og sagði meðal annars að hann myndi helst vilja loka landinu alveg á meðan verið væri að koma böndum á faraldurinn innanlands.

„Ég held að það sé enginn að tala um að landið verði alveg lokað, heldur að það verði bara skimað meira á landamærunum til dæmis.“

Hefur Morgunblaðið eftir Þorgerði sem sagði það ekki aðalmálið hvort landinu verði lokað alveg eða ekki. Það sem skipti máli sé á hvaða forsendum hlutirnir séu gerðir og að gagnsæi ríki um þær ákvarðanir sem eru teknar.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

„Þegar ríkisstjórnin er ekki að tala til fólksins sjáum við árekstra á milli hópa sem gerir það að verkum að samstaðan molnar. Þetta má ekki verða til þess að fólk skilji ekki af hverju ákveðnar ákvarðanir eru teknar eða ekki teknar. Það geta verið forsendur á bak við það en ég vil ekki sjá að atvinnuvegir séu að takast á, listamenn, íþróttamenn, ferðaþjónustan. Þessar deilur eru afleiðing þess að fólk skilur ekki hvað ríkisstjórnin er að gera, því ríkisstjórnin er ekki að gera neitt.“

Er haft eftir Þorgerði sem sagði einnig mikilvægt að ríkisstjórnin þurfi ekki aðeins að bregðast við heldur einnig að hafa frumkvæði og sýna á spilin um leið.

„Það verður hér mikið atvinnuleysi og órói í haust. Hvernig ætlar ríkisstjórnin að svara því? Ekki bara að vera með viðbrögð, heldur að hún sýni spilin. Það er svo nauðsynlegt til að halda áfram samstöðunni.“

Sagði hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki