Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri og fyrrverandi Borgarleikhússtjóri, er orðaður við stöðu Þjóðleikhússtjóra í Fréttablaðinu í dag, en starfið verður auglýst á næstunni þar sem skipunartími Ara Matthíassonar er að renna út um áramótin, en hann hyggst sækja um starfið að nýju.
„Mér finnst ganga vel og það er auðvitað hvatning fyrir mann að halda áfram,“
segir Ari og bendir á árangur sinn í starfi, en metaðsókn hefur verið í leikhúsið undir hans stjórn og það rekið með hagnaði.
Fréttablaðið segir að viðmælendur þess hafi haldið nafni Magnúsar á lofti sem næsta Þjóðleikhússtjóra og mikill áhugi sé á að fá hann til starfsins. Magnús Geir, sem var endurráðinn útvarpsstjóri um áramótin eftir að hafa tekið við starfinu árið 2014, er þó fljótur að bera slíkar vangaveltur til baka:
„Ég er í öðru krefjandi starfi núna. Það eru engin áform um breytingar á því enda fjölmörg spennandi verkefni fram undan.“