fbpx
Mánudagur 12.maí 2025
Eyjan

Ásthildur hjólar í Umboðsmann skuldara og formann Neytendasamtakanna

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 21. mars 2019 15:36

Ásthildur Lóa er formaður Hagsmunasamtaka heimilanna og skýtur föstum skotum á Ástu og Breka.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hagsmunasamtök heimilanna (HH) gagnrýna embætti Umboðsmanns skuldara vegna samstarfs við Samtök fjármálafyrirtækja í fyrirhugaðri morgunráðstefnu og segja það „kalda kveðju“ til skjólstæðinga embættisins. Þetta kemur fram í opnu bréfi Hagsmunasamtaka heimilanna til Umboðsmanns skuldara, Ástu S. Helgadóttur.

„Frá hruni hafa lántakendur mátt sitja undir skelfilegum yfirgangi fjármálafyrirtækja eins og þínu embætti ætti að vera fullkunnugt um, enda stofnað til þess  að aðstoða þá sem lentu í klónum á þessum fyrirtækjum í kjölfar hrunsins. Þér ætti því líka að vera fullkunnugt um að frá hruni hafa a.m.k. 15.000 fjölskyldur misst heimili sín í hendurnar á þessum fyrirtækjum og kennitöluflökkurum, oft vegna ólögmætra aðgerða þeirra. Aukin heldur hafa 117.000 árangurslaus fjárnám verið gerð frá hruni af þessum sömu fyrirtækjum.117.000 í 340.000 manna þjóðfélagi!“

segir í bréfinu, en formaður HH er Ásthildur Lóa Þórhallsdóttir.

Þá er minnst á að aðgerðir fjármálafyrirtækjanna hafi leitt til langvarandi andlegra og fjárhagslegra áhrifa á skuldara:

„Á bak við þessa ótrúlegu tölu eru nokkrir tugir þúsunda einstaklinga sem hafa verið svipt „fjárhagslegum réttindum“ sínum, þau eiga þannig ekki kost á lánafyrirgreiðslum, kreditkortum eða nokkru því sem þarf til að geta verið virkur þátttakandi í samfélaginu. Þetta veist þú og þú ættir einnig að vita að þessum aðgerðum fjármálafyrirtækjanna er ekki enn lokið, þau eru enn þá að valta yfir heimili landsins í krafti yfirburðastöðu sinnar.

Við viljum líka minna á að fjárhagsleg, sem og andleg áhrif þessara aðgerða fjármálafyrirtækjanna á einstaklinganna sem fyrir þeim urðu, eru langvarandi. Margir, meðal annars þínir skjólstæðingar, munu sitja uppi með afleiðingarnar allt sitt líf og við sjáum þær einnig í auknum kvíða hjá bæði  börnum og fullorðnum, ásamt kulnun, svo ekki sé minnst á skelfilegan leigumarkað sem mörg fórnarlömb fjármálafyrirtækjanna eru föst á,“

segir í bréfinu.

Staðan 6-3 fjármálafyrirtækjum í vil

Aukinheldur kemur fram að með þessu samstarfi sé Umboðsmaður skuldara að „taka sér stöðu“ við hlið Samtaka fjármálafyrirtækja, og því sé vægið gagnvart fulltrúum neytenda skekkt:

„Með fyrirhuguðum morgunverðarfundi ert þú að taka þér stöðu við hlið Samtaka fjármálafyrirtækja því hann er svo til algjörlega í höndum þeirra:

  •       Yfirlögfræðingur Samtaka fjármálafyrirtækja setur fundinn
  •       Sviðstjóri hjá Arion banka heldur erindi og situr í pallborði
  •       Framkvæmdarstjóri Framtíðarinnar, lánafyrirtækis í eigu Gamma, heldur erindi
  •       Stjórnarformaður Creditinfo heldur erindi og er í pallborði
  •       Verkefnastjóri fjármálafræðslu hjá Samtökum fjármálafyrirtækja stýrir pallborðsumræðum
  •       Framkvæmdarstjóri Almenna lífeyrissjóðsins er fundarstjóri

Fulltrúar neytenda eru eftirfarandi:

  •       Umboðsmaður skuldara
  •       Formaður neytendasamtakanna
  •       Sviðsstjóri hjá Neytendastofu

6 – 3 fyrir fjármálafyrirtækjunum!“

 Breki litaður af fortíð sinni

Þá er gefið í skyn að formaður Neytendasamtakanna, Breki Karlsson, sé litaður af sínum fyrri stuðningsaðilum:

„Fyrir utan það að staðan sé augljóslega Samtökum fjármálafyrirtækja í vil, þá verður því miður að segjast að engin ykkar sem eruð talsmenn neytenda í þessum fundi, hafið verið talsmenn réttinda  neytenda á fjármálamarkaði hingað til.

Formaður Neytendasamtakanna á meira að segja rætur að rekja til fjármálafyrirtækjanna sem lengi vel voru helstu stuðningsaðilar hans.

Öllum sem fylgst hafa fylgst með málum ætti að vera það fullljóst að þeir einu sem virkilega hafa barist fyrir réttindum neytenda á fjármálamarkaði frá hruni eru Hagsmunasamtök heimilanna.

Þeim var ekki boðin þátttaka og hafa ekki einu sinni fengið boð um að mæta á þennan fína fund.

Hvernig getur þú Ásta Sigrún, í ljósi sögunnar og hlutverks embættis Umboðsmanns skuldara, varið þetta samstarf með Samtökum fjármálafyrirtækja?

Þessi fundur er eins og blaut tuska framan í skjólstæðinga þína og alla þá sem lent hafa í “aðgerðum” fjármálafyrirtækjanna frá hruni.

Með þessu samstarfi við Samtök fjármálafyrirtækja er embætti Umboðsmanns skuldara að taka sér stöðu með þeim sem valdið hafa bæði skjólstæðingum þess, félagsmönnum Hagsmunasamtakanna heimilanna og raunar landsmönnum öllum ómældum skaða sem mun seint eða aldrei verða að fullu bættur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

„Hinn gullni tími“ – Trump missir sig í Hvíta húsinu

„Hinn gullni tími“ – Trump missir sig í Hvíta húsinu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Bergþór bergmálar málflutning SFS um ofurlaun í fiskvinnslu – „Þetta eru bara orðin hálauna- og, að miklu leyti, kvennastörf“

Bergþór bergmálar málflutning SFS um ofurlaun í fiskvinnslu – „Þetta eru bara orðin hálauna- og, að miklu leyti, kvennastörf“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Formaður Sjálfstæðisflokksins fór í vikulangt frí daginn áður en eitt stærsta mál þessa þings var tekið til fyrstu umræðu

Formaður Sjálfstæðisflokksins fór í vikulangt frí daginn áður en eitt stærsta mál þessa þings var tekið til fyrstu umræðu
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Vilhjálmur brýnir sinn gamla flokk – Vill að meira verði gert fyrir Breiðholtið

Vilhjálmur brýnir sinn gamla flokk – Vill að meira verði gert fyrir Breiðholtið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kvennaárinu er fagnað – í kvíða

Sigmundur Ernir skrifar: Kvennaárinu er fagnað – í kvíða
Eyjan
Fyrir 1 viku

Diljá Mist Einarsdóttir: Verðum að ávarpa þá tilfinningu þjóðarinnar að ekki sé eðlileg skipting ágóðans af sjávarútvegi

Diljá Mist Einarsdóttir: Verðum að ávarpa þá tilfinningu þjóðarinnar að ekki sé eðlileg skipting ágóðans af sjávarútvegi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Musk er Bandaríkjunum dýrkeyptur – Kostar 17.000 milljarða

Musk er Bandaríkjunum dýrkeyptur – Kostar 17.000 milljarða
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hæðast að stjórnarandstöðunni fyrir „vandræðalegan“ fund – „Hversu lengi ætlar íhaldið að halda þessum skrípaleik áfram?“

Hæðast að stjórnarandstöðunni fyrir „vandræðalegan“ fund – „Hversu lengi ætlar íhaldið að halda þessum skrípaleik áfram?“