„Ef það reynist rétt að formaður Sjálfstæðisflokksins vilji skipa nýjan formann þingflokksins en sitjandi þingmenn komi í veg fyrir það, þá er illa komið fyrir Sjálfstæðisflokknum, en ég ætla rétt að vona að þetta sé orðið á götunni en ekki sannleikanum samkvæmt,“ sagði Ragnheiður í færslu sinni.
Orðið á götunni greindi frá því þann 9. apríl síðastliðinn að meirihluti þingflokks Sjálfstæðisflokksins hefði lagst gegn því að setja Hildi Sverrisdóttur af sem formaður þingflokksins og gat Guðrún Hafsteinsdóttir ekki komið áformum sínum í gegn. „Þetta er óvenjuleg og ákaflega veik staða fyrir formann Sjálfstæðisflokksins,“ sagði í Orðinu á götunni.
Sjá einnig: Orðið á götunni:Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins er þríklofinn og engin samstaða
Össur segir í pistli sínum, sem ber yfirskriftina Hvenær sýður upp úr?, að Guðrún hafi nýlokið hreinsunaraðgerðum í Valhöll og sópað burt starfsmönnum sem höfðu stýrt vinnu flokksins og kosningum í áratug á „miklu niðurlægingarskeiði“ þar sem flokkurinn hefur fallið niður um margar deildir.
„Þetta er fullkomlega eðlilegt og rökrétt. Nýr formaður á það skilið að fá að byrja með hreint borð. Bæði á flokkskontórnum, en ekki síst í stjórn þingflokks. Þetta er hins vegar mjög erfitt, einkum í stofnanavæddum flokki eins og Sjálfstæðisflokknum, þar sem smákóngar og valdaklíkur hafa hreiðrað um sig,“ segir Össur og bætir við að utan frá virtist þetta takast þokkalega hjá nýjum formanni.
„Það var engu líkara en Sjálfstæðisflokkurinn, sem eftir landsfundinn og heiftarleg átök um formennsku er a.m.k. tvíklofinn ofan í rót, hefði ákveðið að fylkja sér að baki formanninum og gefa henni ráðrúm til að sýna hvað í henni býr,“ segir Össur og vísar svo í færslu Ragnheiðar síðan í gær:
„En hafi mér, eða öðrum orðið á sú skyssa að halda að friður sé brostinn á í Sjálfstæðisflokknum var okkur kippt rækilega inn í veruleikann á sunnudagskvöldið. Gamall og virtur þingskörungur, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, fyrrum formaður þingflokksins, sýndi þá ofan í bullsjóðandi djúp flokksins með eftirfarandi texta á facebook:
„Ef það reynist rétt að formaður Sjálfstæðisflokksins vilji skipa nýjan formann þingflokksins en sitjandi þingmenn komi í veg fyrir það, þá er illa komið fyrir Sjálfstæðisflokknum, en ég ætla rétt að vona að þetta sé orðið á götunni en ekki sannleikanum samkvæmt.”
Össur segir að Ragnheiður Ríkharðsdóttir sé að sönnu byssa af því tagi sem miðar og skýtur sjálf.
„En hún virðist hafa heimildir fyrir því að Guðrún Hafsteinsdóttir – sem hún studdi dyggilega opinberlega – vilji reka Hildi Sverrisdóttur úr embætti þingflokksformanns, en þingflokkurinn komi í veg fyrir það. Samkvæmt því kemur nýr formaður ekki áformum sínum fram af því meirihluti þingflokksins er henni andsnúinn,“ segir Össur og bætir við að kjósendur eigi vitaskuld rétt á að fjölmiðlar upplýsi um stöðuna í stærsta flokki stjórnarandstöðunnar.
„Er það rétt að formaður Sjálfstæðisflokksins hafi ekki lengur traust á Hildi sem þingflokksformanni? Er rétt að Hildur þráist við að fara? Er rétt að nýkjörinn formaður sé í slíkum minnihluta í eigin þingflokki að hún nái ekki fram þeim breytingum á stjórn þingflokksins sem hún telur nauðsynlegar til að koma flokknum aftur á kjöl? Þetta er náttúrlega næsti bær við það að þingflokkurinn standi í björtu báli.“