fbpx
Mánudagur 19.maí 2025
Eyjan

Diljá Mist Einarsdóttir: Ég er Evrópusinni – Evrópa loksins að vakna til lífsins

Eyjan
Mánudaginn 5. maí 2025 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég er Evrópusinni, segir Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hún segir jákvætt að Evrópusambandið skuli loksins vaknað til lífsins varðandi eigin varnir. Það komi til vegna ruddalegs málflutnings Donalds Trump, sem ekki sé mjög staðfastur maður. Hún segir söguna fara illa með leiðtoga ESB sem treystu á Bandaríkin um varnir og ræktuðu svo samband við illvirkja eins og Pútín. Diljá Mist er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:

Eyjan - Dilja Mist - 4
play-sharp-fill

Eyjan - Dilja Mist - 4

„Ég vil alls ekki vera að bera í bætifláka fyrir Donald Trump af því að, eins og þú segir, á er hann einfaldlega mjög óstaðfastur að mörgu leyti, honum finnst eitt einn daginn og svo getur hann verið búinn að taka 180 gráður daginn eftir. En þegar kemur að NATO þá hafa auðvitað aðrir forsetar viðrað sömu skoðanir um veika stöðu Evrópu, um lítið framlag annarra aðildarríkja o.s.frv. Þeir hafa bara ekki gert það með eins ruddalegum hætti og hann,“ segir Diljá Mist.

Hún segir framgöngu Trumps, tal hans og flumbrugang, óneitanlega hafa þau áhrif að vonarneisti kvikni hjá óvinveittum ríkjum. Það sé vissulega ekki gott. „Maður þarf ekkert alltaf að vera að viðra óhreina tauið, ég hef nú mætt á þessa leiðtoga- og ráðherrafundi hjá Atlantshafsbandalaginu og það er alveg hægt að ræða svona hluti í lokuðum herbergjum.

En gott og vel, hann að minnsta kosti vakti Evrópu, loksins, upp af værum svefni, Evrópa er vöknuð og ég gleðst yfir því, ég er mikill Evrópusinni, sem er nú hugtak sem Evrópusambandssinnar reyna gjarnan að ræna, að vera Evrópu sinni, og ég er mikill Evrópusinni. Ég er mjög hlynnt EES-samstarfinu og mér þykir mjög vænt um og þekki mjög vel hvað það er gríðarlega mikilvægt, ekki bara viðskiptasamstarf okkar heldur alls konar, eins víðfeðmt samstarf og hugsast getur.“

Diljá Mist segir Evrópu loksins vera að vakna til lífsins. „Það er enginn sem gætir okkar hagsmuna betur en við sjálf og það er auðvitað ótrúlegt að forsvarsmenn Evrópusambandsins hafi getað unað við það árum og áratugum saman að treysta á varnir og einhvern veginn stóra bróður í Bandaríkjunum öll þessi ár og vera á sama tíma að halla sér upp að og vera í kokteilboðum með illvirkjum eins og Pútín, leggja gasleiðslu fram hjá Úkraínu til Rússlands, leggja á ráðin um ýmis konar framkvæmdir sem eldast bara ekki mjög vel í ljósi sögunnar.“

Hún segir söguna ekki fara mjúkum höndum um þá leiðtoga Evrópusambandsins sem stóðu fyrir þessari stefnu. „En núna er fólk farið að finna til sín og það er jákvætt. Við eigum að fylgjast mjög vel með þeirri þróun. Staðan er samt ekki góð þó að augun hafi loksins verið að opnast núna.“

Þjóðverjar eru að lyfta ströngum skuldatakmörkunum til þess að geta farið í …

„Já, stjórnarskrárbreytingar.“

… til þess að geta farið í hernaðaruppbyggingu.

„Já, já, þetta er bara grafalvarleg staða sem blasir við, ekki síst af því að menn hafa bara verið sofandi undanfarin ár og áratugi.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Evrópa er á fleygiferð

Thomas Möller skrifar: Evrópa er á fleygiferð
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Hún er samsæriskenningasmiður, andstæðingur bóluefna og getnaðarvarna – Nú verður hún landlæknir og aðalráðgjafi Trump

Hún er samsæriskenningasmiður, andstæðingur bóluefna og getnaðarvarna – Nú verður hún landlæknir og aðalráðgjafi Trump
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Aumkunarverð framganga stjórnarandstöðunnar – málþóf, tafaleikir og bjánataktar – samtök sægreifa með útsendara í þinghúsinu

Orðið á götunni: Aumkunarverð framganga stjórnarandstöðunnar – málþóf, tafaleikir og bjánataktar – samtök sægreifa með útsendara í þinghúsinu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Stjórnarandstaða með pólitískt sjálfsofnæmi

Sigmundur Ernir skrifar: Stjórnarandstaða með pólitískt sjálfsofnæmi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Stjórnarandstaðan pirruð yfir að fá að halda málþófinu áfram fram á nótt – „Hvaða leikrit er í gangi?“

Stjórnarandstaðan pirruð yfir að fá að halda málþófinu áfram fram á nótt – „Hvaða leikrit er í gangi?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Ekki benda á mig, segir sérstakur – ríkissaksóknari rannsakar eigin gjörðir

Svarthöfði skrifar: Ekki benda á mig, segir sérstakur – ríkissaksóknari rannsakar eigin gjörðir
Hide picture