Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, var til viðtals á Rás 1 í gær, hvar hann sagði umræðuna um framkvæmdir við Hvalárvirkjun í Ófeigsfirði á Ströndum vera litaða af hroka og yfirlæti í garð Vestfirðinga, en hafa umhverfissinnar barist hart gegn fyrirhuguðum framkvæmdum, sem Skipulagsstofnun telur muni hafa veruleg neikvæð áhrif á landslagið.
Guðmundur sagði raforkumál í landsfjórðungnum í ólestri og sagði framkvæmdina lífsnauðsynlega fyrir svæðið.
Í dag greinir Guðmundur síðan frá því að honum hafi borist fjölmörg skeyti vegna frammistöðu sinnar í útvarpinu og birtir skilaboð sem hann fékk frá manni sem virðist hafa verið í ójafnvægi, sem sjá má neðst í fréttinni.
Skrifar Guðmundur af því tilefni:
„Ég hef fengið nokkur skeyti eftir að ég jarmaði á morgunvaktinni á Rás 1 í gær. Flest hófstillt, önnur skrítin. Þetta trónir á toppnum í furðulegu deildinni. Símtalið sem fylgdi var svo enn furðulegra. Ég sleit því þegar því var haldið fram að fjölgun á Vestfjörðum væri borin uppi af þjófum frá Austur-Evrópu og að ég hafi örugglega þegið heilaþvott í Noregi. Ég sem hélt að rasísku umhverfissinnarnir í #ófærð væru skáldaðar persónur.“