„Ákveðið hefur verið að setja upp gangbrautarvörslu fyrir skólabörn við gangbraut yfir Hringbraut við Meistaravelli. Samráðsfundur verður haldinn í næstu viku og verður auglýstur síðar.“
Þetta segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg í kjölfar slyss á barni sem átti sér stað í morgun. Eftir að fréttir bárust um slysið var boðað til mótmælaaðgerða, þar sem hætta hefur lengi verið viðvarandi á þessum stað vegna mikillar umferðar og slys verið tíð.
Sjá einnig: Boðað til mótmæla í Vesturbænum eftir að ekið var á barn:„Ég get ekki hætt að hugsa um elsku barnið“
Líf Magneudóttir, fulltrúi Vinstri grænna í borgarstjórnarmeirihlutanum, segist hafa verið óþreyjufull eftir róttækum umbótum og vill að dregið sé úr umferðarhraða á Hringbraut:
„Það er algerlega óásættanlegt að búa við margvíslegar hættur sem stafa af bílaumferð og það á enginn að þurfa að hafa áhyggjur af börnum sem fara yfir þungar umferðargötur til og frá skóla eða í frítíma sínum. Börn eiga að geta ferðast örugg um hverfin sín bæði í leik og starfi. Um það getum við öll verið sammála.
Ég hef verið óþreyjufull eftir róttækum umbótum í samgöngumálum sem miða að þörfum vegfarenda sem ekki eru á einkabíl. Þær koma. Um það ríkir eining í meirihluta borgarstjórnar.
Í mínum huga á að draga úr umferðarhraða á Hringbraut, a.m.k. hluta hennar. Á meðan unnið er að úrbótum við hana þá verðum við að gera allt til að tryggja að ekki verði fleiri slys á börnum sem fara yfir á ljósum á leið í skólann. Eitt slys er einu slysi of mikið.“
Reykjavíkurborg hyggst koma upp gæslu á staðnum við upphaf hvers skóladags, en til lengri tíma litið gæti umferðarhraði minnkað verulega:
„Í janúar árið 2017 kom út skýrsla starfshóps umhverfis- og skipulagssviðs um hraðaminnkandi aðgerðir vestan Kringlumýrarbrautar. Þar er m.a. lagt til að hraðamörk verði lækkuð um 10 km/klst. í tveimur áföngum á götum vestan Kringlumýrarbrautar þar sem hraðamörk eru 50 eða 60 km/klst. auk þess sem svæðum með 30 km/klst. hámarkshraða verði fjölgað og núverandi svæði stækkuð. Þar koma einnig fram tillögur um að gönguleiðir þvert á umferðargötur með 40 eða 50 km/klst. hámarkshraða, t.d. á Hringbraut við Framnesveg og Hofsvallagötu verði upphækkaðar og merktar með skýrari hætti.“