fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Eyjan

Samtök ferðaþjónustunnar gagnrýna alhæfingar RÚV um atvinnurekendur í gisti- og veitingaþjónustu

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 18. september 2018 17:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) harma framsetningu fréttar í kvöldfréttum RÚV í gær þar sem skekkt mynd er dregin upp af heilli atvinnugrein,“ segir í tilkynningu frá SAF í dag.

Þar er sagt að skilja hefði mátt frétt RÚV þannig að starfsfólk gisti- og veitingahúsa væri almennt hlunnfarið:

„Skilja mátti á fréttinni og viðtali við fulltrúa stéttarfélagsins Eflingar að atvinnurekendur gisti- og veitingahúsa færu almennt á svig við gildandi lög og reglur til að hlunnfara starfsfólk. Ljóst er að einhliða framsetning sem þessi, þar sem alhæft er um atvinnurekendur í heilum starfsgreinum á grundvelli afmarkaðra dæma án þess að viðbragða sé leitað, er ótæk. Innan vébanda SAF starfar fjöldi hótela, gististaða og veitingahúsa sem kappkosta að fara eftir lögum og reglum gagnvart starfsfólki og samtökin leggja mikla áherslu á fagmennsku og eðlilega viðskiptahætti meðal félagsmanna sinna. SAF starfa daglega með fjölda félagsmanna í viðkomandi greinum og reynslan sýnir að yfirgnæfandi meirihluti þeirra leggur áherslu á að fara eftir reglum sem gilda á vinnumarkaði, lögum og kjarasamningum gagnvart starfsfólki.“

Ennfremur segir að slíkar alhæfingar gefi skakka mynd af atvinnugreininni:

„Þá er rétt að nefna sérstaklega að SAF hefur undanfarin ár lagt sérstaka áherslu á fræðslu- og menntamál starfsfólks í ferðaþjónustu, m.a. í gegn um starf Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, þ.á.m. á gisti- og veitingastöðum. SAF ítreka þá afstöðu sína að fyrirtæki í atvinnurekstri á Íslandi eiga að fara að fullu að kjarasamningum og lögum um vinnumarkað. Mikilvægt er að tekið sé á jaðartilvikum eins og þeim sem fjallað er um í fréttinni og SAF taka heilshugar undir mikilvægi þess að starfsfólk á íslenskum vinnumarkaði þekki vel réttindi sín og skyldur. Þar bera jafnt atvinnurekendur og starfsfólk ábyrgð og mikilvægt að samtök atvinnurekenda og verkafólks vinni í sömu átt að því markmiði. Fréttir eins og sú sem vísað er til hér að ofan, þar sem með alhæfingu er gefin skekkt mynd af heilum geira atvinnureksturs án þess að viðbragða sé leitað, eru því miður lítt til þess fallnar að færa slíkt samstarf fram á veginn heldur ýta því miður fremur undir upptakt að átökum á vinnumarkaði.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins til liðs við kosningateymi Katrínar

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins til liðs við kosningateymi Katrínar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Jóhann Páll Jóhannsson á Alþingi: Hákarlar margfalda höfuðstól smálána – veiðileyfi í boði ríkisstjórnarinnar

Jóhann Páll Jóhannsson á Alþingi: Hákarlar margfalda höfuðstól smálána – veiðileyfi í boði ríkisstjórnarinnar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Enginn ágreiningur milli Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks um opinbera þjónustu og skatta

Ólafur Þ. Harðarson: Enginn ágreiningur milli Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks um opinbera þjónustu og skatta