Samfylkingin auglýsir nú eftir nýjum framkvæmdarstjóra, en enginn slíkur hefur verið við störf frá því að Kristján Guy Burgess hætti þar störfum árið 2016, eftir að flokkurinn beið afhroð í alþingiskosningum, tapaði fimm mönnum og fékk einungis 5.8% fylgi.
Leitað er af „lausnarmiðuðum og sveigjanlegum einstaklingi sem er fljótur að setja sig inn í verkefni og leiða saman ólíka krafta,“ líkt og segir í tilkynningu.
Nánar er fjallað um skyldur og skilyrði starfsins hér að neðan:
Framkvæmdarstjóri Samfylkingarinnar:
Sinnir daglegum rekstri flokksins og fjárreiðum hans
Ber ábyrgð á starfsmannamálum
Ber ábyrgð á eflingu aðildarfélaga og grasrótar
Framkvæmir ákvarðanir stjórnar og framkvæmdastjórnar flokksins í samstarfi við formann framkvæmdastjórnar
Skipuleggur viðburði, undirbýr fundi og heldur utan um ýmis verkefni
Hefur umsjón með kynningarstarfi flokksins, samskiptum við fjölmiðla og sinnir útgáfu, þ.m.t. vefsíðu og samfélagsmiðlum
Annast alþjóðleg tengsl Samfylkingarinnar önnur en þau er lúta að þingflokki
Vinnur að heildarhagsmunum og markmiðum Samfylkingarinnar
Hagnýt reynsla og miklir skipulags- og samskiptahæfileikir eru lykilatriði.
Kostir sem litið verður til:
Menntun sem nýtist í starfi
Reynsla af skipulagi kosninga, annarra herferða og/eða stærri verkefna.
Reynsla og þekking á fjölmiðlum og markaðssetningu
Reynsla af starfsmannahaldi og –stjórnun
Reynsla af stjórnmála- og/eða félagsstarfi
Reynsla af virkjun grasrótar og sjálfboðaliða
Þekking á gerð fjárhagsáætlana og fjármálastjórn
Hafi framúrskarandi samskiptahæfileika og eigi auðvelt með að starfa með ólíkum einstaklingum með breiðan bakgrunn
Taki frumkvæði og sé skipulagður
Samfylkingin hvetur fólk af öllum kynjum til að sækja um stöðuna.
Umsóknir og fyrirspurnir berist á radning@samfylking.is. Frestur til að sækja um er til og með 20. ágúst og umsækjandi þarf að geta hafið störf í haust.