fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Eyjan

Guðlaugur ræddi Sýrland við kollega sína

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 18. apríl 2018 13:30

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ásamt Timo Soini, Margot Wallström og Ine Marie Eriksen Søreide, utanríkisráðherrum Finnlands, Svíþjóðar og Noregs

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins í júlí næstkomandi og helstu málefni á alþjóðavettvangi voru á meðal umræðuefna utanríkisráðherra Norðurlandanna sem lauk í Stokkhólmi fyrir stundu. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sat fundinn þar sem málefni Sýrlands komu meðal annars til umræðu.

„Norðurlöndin eru mjög samstíga í nálgun sinni gagnvart Sýrlandi og þeim takmörkuðu aðgerðum sem Bandaríkin, Bretland og Frakkland réðust í um síðustu helgi. Öll erum við sammála um að hin endanlega lausn á málum í Sýrlandi verði aðeins leyst með pólitískum og diplómatískum hætti, en við vorum sömuleiðis öll sammála um að beiting efnavopna sé óásættanleg og hljóti að hafa afleiðingar í för með sér,“

segir Guðlaugur Þór.

Einnig voru öryggismál á norðanverðu Atlantshafi og í Eystrasaltinu, þróun mála í Evrópu, norðurslóðamál og samskiptin vestur um haf til umfjöllunar.

„Öll eigum við okkar tvíhliða hagsmuna að gæta gagnvart Bandaríkjunum, en við höfum einnig á umliðnum árum nálgast valdhafa í Washington sem ein norræn heild með góðum árangri. Við finnum að Norðurlöndin og framlag okkar á ólíkum sviðum alþjóðastjórnmálanna er vel metið í Bandaríkjunum og við getum nýtt okkur það og almennt gott aðgengi að bandarískum ráðamönnum,“

sagði Guðlaugur Þór Þórðarson.

Utanríkisráðherra átti einnig tvíhliða fund með Margot Wallström, utanríkisráðherra Svíþjóðar, þar sem jafnréttismál, þróunarsamvinna, málefni Norðurlandanna og Sameinuðu þjóðanna, sem og staða mála í Sýrlandi voru meðal umfjöllunarefna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins til liðs við kosningateymi Katrínar

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins til liðs við kosningateymi Katrínar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Jóhann Páll Jóhannsson á Alþingi: Hákarlar margfalda höfuðstól smálána – veiðileyfi í boði ríkisstjórnarinnar

Jóhann Páll Jóhannsson á Alþingi: Hákarlar margfalda höfuðstól smálána – veiðileyfi í boði ríkisstjórnarinnar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Enginn ágreiningur milli Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks um opinbera þjónustu og skatta

Ólafur Þ. Harðarson: Enginn ágreiningur milli Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks um opinbera þjónustu og skatta