fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Eyjan

Samtök ferðaþjónustunnar segja breytingar á virðisaukaskatti óvirðingu við greinina

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 28. apríl 2017 15:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mynd/Getty

Samtök ferðaþjónustunnar krefjast þess að fyrirhugaðar breytingar á virðisaukaskatti á ferðaþjónustu, sem greint er frá í fjármálaáætlun ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar til fimm ára verði slegnar af. Samtökin segja að þessar skattahækkanir muni valda því að ferðamenn stoppi skemur á landinu og halda sig í meira mæli á suðvestanverðu landinu.

 

Umsögn samtakanna um fjármálaáætlunina var birt í dag og var hún kynnt fyrir efnahags- og viðskiptanefnd í morgun og í kjölfarið var haldin blaðamannafundur. Samtökin gerðu könnun á meðal félagsmanna sinna og þar kom fram mikil andstaða við breytingarnar. Telja hvorki meira né minna en 90% fyrirtækja að breytingarnar muni hafa neikvæð áhrif á rekstur þeirra og heil 70% að áhrifin verði mjög neikvæð.

Helga Árnadóttir framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar

Helga Árnadóttir er framkvæmdastjóri SAF. Á blaðamannafundinum sagði hún að alvarlegar athugasemdir væru gerðar af hálfu samtakanna við að ekkert samráð hefði verið haft við samtökin eða fyrirtæki í greininni. Samtökin hafi fengið kynningu á þessu klukkustund áður en breytingarnar voru kynntar opinberlega og fengið fjóra daga til að skila inn umsögnum. Þetta segir Grímur Sæmundson, formaður samtakanna, að sé mikil óvirðing í garð ferðaþjónustunnar sem er orðin stærsta útflutningsgrein landsins.

Sjáskot úr Eyjuþætti vikunnar á ÍNN.

Benedikt sagði í þættinum Eyjunni á ÍNN í gærkvöldi að ríkisstjórnin hygðist ekki bakka með fyrirætlanir sínar um að hækka ferðaþjónustuna upp í 24% virðisaukaskattþrep úr 11% en þessi breyting á að taka gildi 1. júlí 2018. Þessi hækkun tekur þó ekki til veitingaþjónustu sem verður áfram í neðra þrepi líkt og matvörur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Svarthöfði skrifar: Nytsamlegir sakleysingjar þjóna hagsmunum ríkustu fjölskyldna landsins og fá brauðmola að launum

Svarthöfði skrifar: Nytsamlegir sakleysingjar þjóna hagsmunum ríkustu fjölskyldna landsins og fá brauðmola að launum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorbjörg Sigríður: Ríkisstjórnin klárar stóru málin – fólk kann að meta breytingarnar sem fylgja stjórninni

Þorbjörg Sigríður: Ríkisstjórnin klárar stóru málin – fólk kann að meta breytingarnar sem fylgja stjórninni
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær

Tillaga um lækkun fasteignagjalda í Reykjavík óábyrg og ótímabær