fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Eyjan

Fyrrverandi blaðamaður Fréttatímans lætur Gunnar Smára heyra það: „Hvílíkt taktleysi og firring“

Ari Brynjólfsson
Föstudaginn 28. apríl 2017 13:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gunnar Smári Egilsson og Ingi Freyr Vilhjálmsson. Samsett mynd/DV

Ingi Freyr Vilhjálmsson fyrrverandi blaðamaður á Fréttatímanum lætur sinn fyrrverandi ritstjóra og útgefanda Gunnar Smára Egilsson heyra það.

Í harðorðuðum pistli á Stundinni segir Ingi Freyr að mánudaginn 3.apríl síðastliðinn hafi starfsmenn Fréttatímans ekki fengið laun fyrir marsmánuð, Gunnar Smári hafi boðað forföll á skrifstofu blaðsins og mætt í útvarpsþáttinn Harmageddon á X-inu 977 þar sem starfsmenn hans gátu hlustað á hann ræða afhverju það þyrfti að stofna Sósíalistaflokk á Íslandi.

Starfsmenn Fréttatímans eru bara „venjulegt launafólk“, alveg eins og fólkið sem Gunnar Smári talaði um að hann vildi vinna fyrir í sósíalistaflokknum sínum í viðtalinu við Harmageddon, og réttindi þess voru langt í frá tryggð þegar Gunnar Smári talaði með þessum hætti um Sósíalistaflokk Íslands. Gunnar Smári reyndi hins vegar ekki að tryggja réttindi þessa fólks sem hann sjálfur var með í vinnu og kom hann ekki aftur til starfa á Fréttatímanum eftir þetta,

segir Ingi Freyr. Starfsmenn náðu ekki í Gunnar Smára í upphafi mánaðarins og vísaði á framkvæmdastjóra blaðsins þegar hann var spurður um stöðuna. Í viðtali á RÚV 6. apríl hafi Gunnar Smári sagt í viðtali við RÚV að hann hefði verið í fríi og það kæmi til greina að hætta afskiptum af Fréttatímanum til að stofna Sósíalistaflokk Íslands:

Þessi orð Gunnars Smára voru í mótsögn við útskýringarnar sem hann gaf starfsmönnum á því tveimur dögum síðar af hverju hann hefði ekki talað við starfsfólk eða mætt til vinnu og sagði hann meðal annars að honum hefði verið vikið frá störfum sem starfsmanni og stjórnarmanni hjá Fréttatímanum í lok marsmánaðar. Í samræðu sinni við starfsmenn Fréttatímans tók Gunnar Smári ekki fram að ein af ástæðunum fyrir því af hverju hann hefði ekki mætt til vinnu eða talað við starfsfólk væri sú að hann ætlaði að stofna sósíalistaflokk.

Ekki sósíalismi í verki

Þegar rekstur Fréttatímans var kominn í óefni segir Ingi Freyr að Gunnar Smári hafi verið fyrsti starfsmaðurinn til að yfirgefa fyrirtækið, fyrst hafi hann sagst vera að stofna flokk svo breytt sögunni að hann hafi verið rekinn. Aðrir hluthafar Fréttatímans hafi áfram bent starfsmönnum á að tala við Gunnar Smára um stöðuna, það væri óvenjulegt ef það hefði verið búið að reka Gunnar Smára:

Niðurstaðan hlýtur að vera sú að Gunnar Smári hafi sjálfur tekið ákvörðun um að hætta daglegum störfum fyrir Fréttatímann þegar í óefni var komið. Eftir sitja hluthafar, kröfuhafar og starfsmenn með fjárhagslegt tap af og hinir síðastnefndu eru í algjörri óvissu um tekjuöflun sína á næstu mánuðum.

Ingi Freyr segir hegðun Gunnars Smára ekki sósíalisma í verki, skipti þá engu máli að hann sé að stofna stjórnmálaflokk til að berjast fyrir réttindum launafólks:

Svona hegðun gagnvart starfsfólki fyrirtækis og öllum hlutaaðeigandi aðilum sem bera skaða af rekstri Fréttatímans er aldrei gott veganesti inn í stjórnmálastarf, sama svo sem hvað flokkurinn heitir og sama hvað verður úr þessum sósíalistaflokki Gunnars Smára. Svona hegðar maður sér bara ekki sem ativnnurekandi. Skortur Gunnars Smára á auðmýkt í þessum útskýringum sínum og skuldaskilum sínum við starfsfólk blaðsins var algjör.

Býður starfsmönnum fjárhagslega óvissu og á stofnfund Sósíalistaflokks Íslands

Nú sé staðan sú að Gunnar Smári býður starfsmönnum sínum upp á fjárhagslega óvissu en á sama tíma sé hann að bjóða þeim á stofnfund Sósíalistaflokks Íslands þann 1. maí í gegnum samskiptamiðilinn Facebook:

Líka einstæðu móðurinni sem var að kaupa sér íbúð og sem á ekki fyrir mánaðamótunum sem og öllum hinum sem eru misvel staddir fjárhagslega en sem allir verða fyrir fjárhagslegu höggi af gjaldþrotinu sem Gunnar Smári stýrði blaðinu í.

Eiginlega er ótrúlegt að fylgjast með þessu, hvílíkt taktleysi og firring; það er eins og maðurinn kunni ekki að staldra aðeins við og skammast sín og spyrja sjálfan um erindi sitt til að taka þátt í stjórnmálastarfi miðað við skaðann sem síðasta ævintýri hans hefur valdið venjulegu fólki sem hann vill nú vinna fyrir sem stjórnmálamaður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorbjörg Sigríður: Ríkisstjórnin klárar stóru málin – fólk kann að meta breytingarnar sem fylgja stjórninni

Þorbjörg Sigríður: Ríkisstjórnin klárar stóru málin – fólk kann að meta breytingarnar sem fylgja stjórninni
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Annaðhvort veit Guðrún Hafsteinsdóttir ekki betur eða hún talar gegn betri vitund

Þorbjörg Sigríður: Annaðhvort veit Guðrún Hafsteinsdóttir ekki betur eða hún talar gegn betri vitund
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“