Igor Druz er talsmaður uppreisnarmannanna, sem eru studdir af Rússum, og vilja koma upp ríkinu Novorossia (Nýja-Rússlandi) í Austur-Úkraínu.
Igor er sérlegur aðstoðarmaður uppreisnarforingjans Igors Strelkovs.
Samkvæmt BBC er er hann ákafur stuðningsmaður rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar, hann styður kristið siðgæði og fjölskyldugildi, en er á móti samkynhneigð. Hann vill leiða dauðarefsingu í lög og telur að flestir uppreisnarmennirnir muni styðja þetta.
Druz viðurkennir í samtalinu við BBC að uppreisnarmennirnir hafi fellt dauðadóma og framfylgt þeim með skotvopnum – til að koma í veg fyrir glundroða. Þess vegna séu sveitir þeirra mjög agaðar.