fbpx
Miðvikudagur 18.júní 2025
Eyjan

Katrín hleður í annað námskeið – Tekur nú metsölubækur fyrir

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 22. maí 2025 13:36

Katrín Jakobsdóttir. Mynd: Olga Björt Þórðardóttir/EHÍ.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Katrín Jakobsdóttir, formaður stjórnar Fasteigna Háskóla Íslands, og fyrrum forsætisráðherra og formaður Vinstrihreyfingarinnar, hélt glæpasagnanámskeið hjá Endurmenntun Háskóla Íslands í mars. 

Námskeiðið mæltist vel fyrir og var fullt hús nemenda sem voru afar áhugasamir og fróðir um námsefnið.

Sjá einnig: Katrín heldur glæpasagnanámskeið

Endurmenntun auglýsir nú annað námskeið með Katrínu, Íslenskar metsölubækur í 50 ár, sem haldið verður í fimm skipti frá 30. október til 27. nóvember.

Í námskeiðslýsingu er spurt: Hvenær fóru Íslendingar að fjalla um metsölubækur og birta metsölulista? Og hvaða bækur hafa ratað á þá lista?

Á þessu námskeiði verður fjallað um sögu metsölubókarinnar og fimm metsölubækur frá ólíkum tímum lesnar og bornar saman.

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Markaðssetningu og vinsældir bóka.
  • Þróun skáldskapar frá áttunda áratug 20. aldar fram til okkar tíma og samhengi hans við samfélagsþróun.
  • Ólíka strauma í vinsældum bóka.

Ávinningur nemenda mun verða aukinn skilningur á bókmenntasögu, aukinn skilningur á markaðssetningu bóka og hvað skapar vinsældir þeirra og djúplestur á ólíkum skáldsögum.

Námskeiðið er fyrir öll sem eru áhugasöm um samfélag og skáldskap og langar að skilja hvort tveggja betur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Ofbeldi í nánum samböndum

Óttar Guðmundsson skrifar: Ofbeldi í nánum samböndum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Jón Cleon ráðinn forstöðumaður markaðsmála N1 

Jón Cleon ráðinn forstöðumaður markaðsmála N1 
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Nína Richter skrifar: Andlitin sem enginn man

Nína Richter skrifar: Andlitin sem enginn man
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Froðusnakkar, orð að sönnu – stjórnarandstaðan velur sér nafn

Svarthöfði skrifar: Froðusnakkar, orð að sönnu – stjórnarandstaðan velur sér nafn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Svandís boðar samstarf við aðra flokka

Svandís boðar samstarf við aðra flokka
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir það blasa við að „samstöðudans stjórnarmeirihlutans“ sé sérlega stirður milli tveggja flokka

Segir það blasa við að „samstöðudans stjórnarmeirihlutans“ sé sérlega stirður milli tveggja flokka
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Þetta er það sem stórútgerðin fær í afslátt hjá þjóð sinni

Sigmundur Ernir skrifar: Þetta er það sem stórútgerðin fær í afslátt hjá þjóð sinni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Þráin eftir Trump

Óttar Guðmundsson skrifar: Þráin eftir Trump