fbpx
Þriðjudagur 17.júní 2025
EyjanFastir pennar

Svarthöfði skrifar: Ef Múhameð vill ekki fara til fjallsins verður fjallið að koma til Múhameðs

Svarthöfði
Föstudaginn 23. maí 2025 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Umræðan um ástand þingmanna við þingstörf hefur ekki farið fram hjá Svarthöfða á liðnum dögum. Einhverjir fjölmiðlar hafa velt því fyrir sér hvort Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrrverandi tilvonandi formaður Sjálfstæðisflokksins, hafi verið aðframkomin af þreytu er hún brá sér í ræðustól þingsins á þriðjudagskvöld, að því er virðist samkvæmt liðsfyrirmælum til þingmanna Sjálfstæðisflokksins að eyða sem mestum tíma í kjaftaði um tittlingaskít til að tefja framgang þingmála.

Einhverjir velta því fyrir sér hvort hún hafi einfaldlega verið slompuð þarna í ræðustólnum, en fyrr um daginn hafði hún í tvígang birt myndir af sér á samfélagsmiðlum með glas á fæti í sólskininu sem ljómaði um bæinn þann dag.

Sumum finnst það ljóður á ráði þingmanna að sitja með glas í hendi úti í bæ þegar þeir eiga að sitja í þingsal að vinna vinnuna sína. Slíkt athæfi getur haft afleiðingar. Skemmst er að minnast þess er nokkrir þingmenn sátu að sumbli á Klausturbar og ræddu álit sitt á nafngreindu kvenfólki við hliðina á borði Báru.

Svarthöfði verður samt að viðurkenna að hann hefur vissa samúð með þingmönnum sem freistast til að fara út í góða veðrið og fá sér í svo sem aðra tána milli þess sem þeir stunda málþóf í þingsal og veltir því fyrir sér hvort ekki sé til einhver lausn á þessu máli.

Ekki verður betur séð en að stjórnarandstaðan með Sjálfstæðisflokk í broddi fylkingar ætli sér að beita málþófi í öllum málum sem koma á dagskrá þingsins. Með þessu áframhaldi verður þingið að sitja í allt sumar ef takast á að afgreiða þau mál sem ríkisstjórnin hefur ákveðið að samþykkja þurfi.

Svarthöfði veltir því fyrir sér hvort forseti þingsins verði ekki einfaldlega að koma til móts við málþófsdrykkjurútana á þingi og hugsa þá aðeins út fyrir boxið. Er ekki bara hægt að flytja þingfundina út úr húsi? Ef góða veðrið kemur aftur, eins og við vonum öll nema ferðaskrifstofurnar sem eru að selja sólarlandaferðir, væri t.d. alveg upplagt að halda bara þingfundi í Jómfrúarportinu. Þá geta þingmenn setið þar með hvítt í glasi og sólað sig milli þess sem þeir koma í ræðustól og ræða störf forseta til að draga þingfundi á langinn.

Einnig mætti hugsa sér að þingmenn funduðu á Austurvelli þar sem eru margir barir og mörg borð úti á gangstétt. Þar væri líka hægt að vera með ræðupúltið upp við styttu Jóns Sigurðssonar, sem myndi gefa beinni útsendingu af þingfundi á Alþingisrásinni þjóðlegan blæ.

Svarthöfði minnir á að fordæmi eru fyrir því að fundir Alþingis hafi verið færðir úr húsi. Við sérstök tækifæri eru haldnir þingfundir undir beru lofti á Þingvöllum. Vitaskuld mætti hugsa sér að flytja sumarfundi þingsins þangað nú en þá þarf auðvitað að huga að aðföngum fyrir þingmenn í ljósi þess að eftir að Hótel Valhöll brann ku vera lítið aðgengi að göróttum drykkjum á Þingvöllum.

Svarthöfði leggur áherslu á þess að hugsa í lausnum þegar staðið er frammi fyrir svona vandamálum. Ef Múhameð vill ekki fara til fjallsins verður fjallið að koma til Múhameðs.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Reiptog lýðræðis og hagsmuna

Þorsteinn Pálsson skrifar: Reiptog lýðræðis og hagsmuna
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Tveggja turna tal

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Tveggja turna tal
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Steinunn Ólína: Velkomin til Íslands

Steinunn Ólína: Velkomin til Íslands
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Umræðu lyft á hærra plan

Þorsteinn Pálsson skrifar: Umræðu lyft á hærra plan
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Brimlaus andstaða

Þorsteinn Pálsson skrifar: Brimlaus andstaða
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Við borðið eða á ganginum?

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Við borðið eða á ganginum?
EyjanFastir pennar
17.05.2025

Sigmundur Ernir skrifar: Efnaðasta fólkið fær mesta afsláttinn

Sigmundur Ernir skrifar: Efnaðasta fólkið fær mesta afsláttinn
EyjanFastir pennar
16.05.2025

Steinunn Ólína skrifar: Verjum hafið og hemjum valdið

Steinunn Ólína skrifar: Verjum hafið og hemjum valdið