Edduhátíðin árlega er á laugardag – eða er það sunnudag?
Ég verð að viðurkenna að ég á stundum pínu erfitt með þessar samkomur.
Það er erfitt að ofmetnast yfir því að vera frægur á Íslandi.
Maður þarf ekki annað en að koma rétt úr fyrir landsteinana til að vera kippt niður á jörðina aftur – þess vegna er svo gott að fara til útlanda.
En ég og samstarfólk mitt erum tilnefnd til fernra verðlauna:
Fyrir Kiljuna, Silfur Egils, þátt um Gyrði Elíasson og svo er ég tilefndur sem sjónvarpsmaður ársins.
Þetta snýst ekki bara um mig, pródúsentinn minn, Ragnheiður Thorsteinsson, á alveg jafn mikið í Kiljunni og myndinni um Gyrði og ég.
Myndin um Gyrði var sýnd í Sjónvarpinu í október, hér erum við fyrir utan æskuheimili hans á Sauðárkróki, fyrir aftan okkur er hin eitursnjalla Ragga. Myndin er tekin af vefnum Druslubækur og doðrantar.