fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
Fókus

Fullyrðir að barnabarn Presley sé líffræðileg móðir sonar John Travolta

Fókus
Fimmtudaginn 18. desember 2025 10:30

John Travolta og Kelly Preston ásamt börnum þeirra.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi viðskiptafélagi Priscillu Presley, fyrrum eiginkonu Elvis Presley, heldur því fram að leikkonan Riley Keough sé líffræðileg móðir Ben, yngsta sonar John Travolta, Ben, í nýrri málsókn.

Brigitte Kruse heldur því fram og eiginkona hans, Kelly Preston, sem lést árið 2020, hafi notað egg Keough til að geta son sinn, sem fæddist árið 2010.

Í málsókninni heldur Kruse fram að Keough hefði fengið á milli 10.000 og 20.000 dollara og gamlan Jaguar-bíl fyrir.

Riley Keough

Samkvæmt Kruse á Keough, 36 ára, að hafa samþykkt að gefa upp eggin sín eftir að móðir hennar, Lisa Marie Presley, sem lést árið 2023, gaf Travolta og Preston eitt sinn sín egg.

Lisa Marie á að hafa samþykkt að hjálpa þeim að verða þunguð eftir að fyrrverandi eiginmaður hennar, Michael Lockwood, sagði henni að þau gætu ekki eignast sín eigin börn.

Travolta, 71 árs, og Preston, sem lést 57 ára að aldri árið 2020, eru að sögn Kruse ekki hafa viljað nota egg Lisu Marie lengur vegna fíkniefnaneyslu hennar.

Skaðlegu ásakanirnar koma fram í málsókn sem fyrrverandi samstarfsmenn Priscillu höfðuðu, þar á meðal Kruse og Kevin Fialko. Breyttu þau upphaflegri  50 milljóna dollara málsókn sinni gegn syni Priscillu, Navarone Garibaldi Garcia, vegna samningsbrots.

Samkvæmt málsókninni „krafðist öll fjölskylda Presley stjórnar yfir dánarbúinu og greiðslum, og notaði stefnendurna Kruse og Fialko sem bæði samningamenn og sáttasemjara“ eftir andlát Presley.

Lögmaður Priscillu, Marty Singer, neitaði harðlega ásökunum gegn barnabarni sínu í yfirlýsingu til Us Weekly á mánudag. Singer hélt því fram að Kruse hafi „sýnt fram á að engin mörk séu of lág, engin siðferðileg mörk sem þeir eru ekki tilbúnir að fara yfir í þeim tilgangi að valda Priscillu Presley og fjölskyldu hennar frekari sársauka.“ „Þessar nýlegu hneykslanlegu ásakanir hafa alls ekkert að gera með ásakanirnar í þessu máli,“ bætti lögmaðurinn við og gagnrýndi þær harðlega sem „skammarlegar“.

Mæðgurnar Priscilla og Lisa Marie Presley, ásamt dætrum Lisu.

Travolta og Preston, sem giftu sig árið 1991,  áttu saman synina Jett, sem lést á hörmulegan hátt árið 2009, aðeins 16 ára að aldri og Ben, 15 ára, auk dótturinnar Ellu Bleu, 25 ára.

Keough hefur verið gift Ben Smith-Petersen, síðan 2015. Þau eiga dótturina Tupelo, þriggja ára, og annað barn sem fætt var snemma árs 2025.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Líf Hawk Tuah-gellunnar sett á hliðina eftir rafmyntasvindlið – „Ég fór ekki út úr húsi svo mánuðum skipti“

Líf Hawk Tuah-gellunnar sett á hliðina eftir rafmyntasvindlið – „Ég fór ekki út úr húsi svo mánuðum skipti“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ragnhildur segir okkur þurfa að útrýma þessu heilkenni strax

Ragnhildur segir okkur þurfa að útrýma þessu heilkenni strax
Fókus
Fyrir 3 dögum

Jóhannes Haukur eftir Silfrið í gær: „Plís! Ég get ekki meir!!!“

Jóhannes Haukur eftir Silfrið í gær: „Plís! Ég get ekki meir!!!“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Heyrði hásinina slitna í sigurleiknum: „Þegar maður er miðaldra prófar maður allt sem er töff“

Heyrði hásinina slitna í sigurleiknum: „Þegar maður er miðaldra prófar maður allt sem er töff“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Fókusinn á það hvað er að gerast í næsta húsi, hvort sem að það var að einhver væri orðinn ríkur eða einhver væri kominn í ræsið“

„Fókusinn á það hvað er að gerast í næsta húsi, hvort sem að það var að einhver væri orðinn ríkur eða einhver væri kominn í ræsið“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sebastian – Íslandsfrumsýning á Stockfish í kvöld

Sebastian – Íslandsfrumsýning á Stockfish í kvöld