fbpx
Þriðjudagur 03.júní 2025
Eyjan

AMX og Birni boðið í kaffi

Egill Helgason
Miðvikudaginn 15. febrúar 2012 14:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Evrópuvaktin þar sem Björn Bjarnason er ritstjóri og vefurinn AMX heyra undir sama fyrirtæki sem nefnist Vefmiðlun.

Það lekur mikið þarna á milli.

Nú er bæði Birni og AMX tíðrætt um hið ógurlega kaffisamsæ(t)(r)i á Kaffifélaginu. Þetta er dregið upp á mjög þráhyggjukenndan hátt.

Ég held það sé bara eitt ráð við þessu.

Að bjóða nú Birni og AMX-verjum í kaffi á Kaffifélaginu einhvern morguninn.

Fyrirkomulagið er þetta:

Kaffifélagið er eins og lítil hola í vegg. Maður gengur inn, drekkur kaffið standandi innandyra eða úti á stétt. Yfirleitt staldrar maður stutt við, en þetta er ágætur staður til að kasta kveðju á fólk.

Hann er hins vegar ómögulegur ef maður ætlar að eiga fund með einhverjum – vegna þess að þarna er ekkert næði og eiginlega engir stólar heldur. Og að halda plottfundi þarna – það gengur eiginlega ekki.

Það gæti vel verið að Helgi Seljan verði staddur á Kaffifélaginu þegar AMX og Björn koma þangað, nú eða Hallgrímur Helgason. Varla Jóhann Hauksson því yfirleitt sýnist mér hann bara ganga framhjá. Svo gætu verið að kæmu aðrir fastagestir eins og Karl Pétur Jónsson, Pétur Blöndal, Magnús Gunnarsson, Reynir Lyngdal, Mugison, Lísa Kristjánsdóttir, Eiríkur Jónsson, Sigurveig Káradóttir, Jón Finnbjörnsson eða annað gott fólk.

En ég býð AMX og Birni í kaffi – ef ég er ekki á staðnum mega þeir skrifa kaffið á minn reikning. Og ég get lofað því – þetta er besta kaffi í bænum.

Á glaðri morgunstund utan við Kaffifélagið: Egill Ólafsson, Hallgrímur Helgason, Mugison, Þorgerður Agla Magnúsdóttir, Eirún Sigurðardóttir og síðuhaldari.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Steinunn Ólína: Velkomin til Íslands

Steinunn Ólína: Velkomin til Íslands
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Gunnar Smári um uppgjörið í Sósíalistaflokknum – „Ég var búinn með minn tíma“

Gunnar Smári um uppgjörið í Sósíalistaflokknum – „Ég var búinn með minn tíma“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sahara og Disko í samstarf

Sahara og Disko í samstarf
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Ef Múhameð vill ekki fara til fjallsins verður fjallið að koma til Múhameðs

Svarthöfði skrifar: Ef Múhameð vill ekki fara til fjallsins verður fjallið að koma til Múhameðs