
Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og ritstjóri, skrifar þessa grein um Thor Jensen, langafa sinn, í Morgunblaðið í dag.
— — —
Í Morgunblaðinu laugardaginn 1. ágúst er fréttaskýring um Björgólf Guðmundsson þar sem segir að saga hans minni »um margt á ævi Thors Jensen« og til marks um það haft að Thor Jensen hafi farið »tvívegis á höfuðið en varð Íslendinga ríkastur þegar best lét«.Ekki veit ég hversu kunnugur blaðamaður er ævi Thors Jensen, en sá sem kynnt hefur sér hana vel ætti þó að vita að Thor varð einu sinni gjaldþrota og hafði fáeinum árum síðar greitt upp hverja krónu. Einnig ætti viðkomandi að vera ljóst að Thor notaði fé sitt til að byggja upp öflug fyrirtæki sem störfuðu í raunveruleikanum við raunverulega framleiðslu á raunverulegum verðmætum. Thor Jensen kom undir sig fótunum á unglingsaldri með því að útvega íslenskum bændum það sem þá vanhagaði um en danskir kaupmenn höfðu látið ógert að spyrja þá útí. Á fullorðinsárum sínum byggði hann upp arðvænleg fyrirtæki í útgerð og fiskvinnslu sem öfluðu landinu mikilla gjaldeyristekna og veittu þúsundum manna atvinnu. Hann átti ríkan þátt í að hrinda einokun Dana í verslun hér á landi og tók forystu fyrir því að koma á fót Eimskipafélagi Íslands. Thor Jensen lét sér ekki nægja að dreyma um að draga úr fátækt og vankunnáttu, doða, framtaksleysi og öðrum fylgifiskum langvinnrar eymdar hér á landi – hann lét drauma sína rætast. Hann lokaði hringnum á gamals aldri með því að setja á fót stórbú í landbúnaði og lagði mikið á sig til að sýna fram á að hér væri hægt að standa myndarlega að málum í þessari atvinnugrein, eins og öllu öðru sem hann tók sér fyrir hendur. Thor var vissulega skapríkur, einþykkur og hvatvís og hafði lítinn skilning á verkalýðsbaráttu, en allt sem hann kom að var gert af heiðarleika og miklum myndarskap; í verslun, útgerð, landbúnaði og húsagerð. Thor Jensen byggði upp þar sem voru eyður. Útrásarvíkingar nútímans skildu eftir eyður þar sem áður var uppbygging.
Hann var útlendingur sem ungur ákvað að gerast Íslendingur. Útrásarvíkingar nútímans eru Íslendingar sem alltaf eru að reyna að verða útlendingar. Við verkalok gat Thor Jensen litið stoltur um öxl. Hann hafði dugað þjóð sinni vel og umsvif hans höfðu orðið mörgum til gæfu en engum til ógæfu.
Ég læt lesendum eftir samanburðinn.