fbpx
Fimmtudagur 26.júní 2025
Eyjan

Það vantar fleiri gosbrunna

Egill Helgason
Föstudaginn 4. nóvember 2005 21:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gamall skólabróðir minn Þorgrímur Þráinsson bað mig um að setja saman tíu hugmyndir um Ísland framtíðarinnar, þetta birtist svo í Toyota-blaðinu sem var borið út í morgun. Ég lét fylgja með svohjóðandi formála:

Þessar hugmyndir fjalla allar um Reykjavík og mótast af því að ég er upprunninn í vesturhluta borgarinnar. Sumt af þessu er draumórakennt, annað raunhæft, en ég held að furðu margt verði einhvern tíma að veruleika.

— — —

Brú yfir á Álftanes. Þá verður hægt að keyra í hring kringum höfuðborgarsvæðið. Eins og alvöru borgir.

— — —

Byggð í Vatnsmýri. Það á að vera borgarhverfi sem tekur mið af Þingholtunum, Skólavörðuholti og Miðbænum, ekki alltof háreist en fyrst og fremst fjölbreytt.

— — —

Flugvöllur á Lönguskerjum eða Bessastaðanesi. Ég er veikur fyrir hugmyndum um að það verði alþjóðaflugvöllur þegar flugvélar verða lágværari og þurfa minna pláss til að lenda.

— — —

Jarðlest austur úr bænum, í hverfin og bæina í kring. Eða á teinum yfir borginni. Kannski útópískt, en hver veit hvað gerist á næstu hundrað árum.

— — —

Betri umgengni. Það er alltof mikill sóðaskapur í Reykjavík. Hvað varð um herferðina Hrein torg – fögur borg?

— — —

Tryggvagötuna í stokk. Og alvöru borgarhverfi meðfram hafnarsvæðinu sem nú er hræðilega döpur eyðimörk. Hafnarstarfsemi í bland við mannlíf.

— — —

Útimarkað, eða markað sem er hálfur úti og hálfur inni, með alvöru íslenskum afurðum, ekki skrani, heldur fiski, kjöti, grænmeti, jurtum og öðru sem framleitt er hér og landið gefur af sér.

— — —

Endurnýjaður miðbær þar sem verstu hjallarnir eru rifnir og reist fallegt verslunarhúsnæði í staðinn. Ég hef mælt með stíl sem ég kalla "Reykjavíkurklassík" og má sjá í nokkrum stórbyggingum sem voru reistar á fyrstu áratugum aldarinnar.

— — —

Gosbrunna. Ótrúlegt að þá vanti í borg þar sem er svo mikið af vatni.

— — —

Meira um rennandi vatn. Opna lækinn í Lækjargötu. Planta trjágöngum þar í kring. Þá verður gaman að ganga milli Tjarnarinnar og Hafnarinnar á sumarkvöldum.

Fyrst birt: 04. nóv. 2005 21:12

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Enn eru fornmenn á ferð