fbpx
Föstudagur 13.febrúar 2026
Eyjan

Uppákoma á Alþingi – Hótaði að vísa Jóni Gunnarssyni úr þingsalnum

Eyjan
Laugardaginn 31. janúar 2026 17:00

Jón reiddi þingforseta til reiði á Alþingi

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórunn Sveinbjörnsdóttir, forseti Alþingis, hótaði að vísa Jóni Gunnarssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, úr þingsal ef að hann léti ekki af framíköllum í umræðum um nýtt frumvarp ríkisstjórnarinnar í vikulok.

Athygli var vakin á uppákomunni á Facebook-síðu Landssambands smábátaeiganda en hún átti sér stað undir liðnum „Fundarstjórn forseta“ þar sem rætt var um nýtt grásleppufrumvarp ríkisstjórnarinnar sem stjórnarandstaðan, með Jón í fararbroddi, er ósátt við.

Frumvarpið gengur út á að afnema aflamarksstjórn á grásleppu sem sett var í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokksins, Vinstri Grænna og Framsóknarflokksins árið 2024 og varð til þess að Lilja Rafney Magnúsdóttir, sem þá var þingmaður VG, sagði sig úr flokknum. Hún er í dag þingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi og er fyrsti flutningsmaður lagafrumvarpsins þar sem breytingunum er snúið við.

Jón Gunnarsson er meðal þeirra sem að er ósáttur við breytingarnar en hann þekkir vel til málaflokksins því tengdasonur hans rekur grásleppuútgerð. Hótaði Jón því að hefja aftur málþóf um allt annað málefni ef frumvarpið yrði ekki tekið af dagskrá.

Hér má sjó myndskeið af uppákomunni í þingsal:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Fer úr FH í Hauka
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Nína Richter skrifar: Þessi ógeðslegu skjöl

Nína Richter skrifar: Þessi ógeðslegu skjöl
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Titringur magnast í Framsókn – lítt eftirsóknarvert hlutverk næsta formanns

Orðið á götunni: Titringur magnast í Framsókn – lítt eftirsóknarvert hlutverk næsta formanns
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Péturslögmálið

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Péturslögmálið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Æra látins manns

Björn Jón skrifar: Æra látins manns