fbpx
Föstudagur 13.febrúar 2026
Eyjan

Björg bar sigur úr býtum í oddvitakjöri Viðreisnar

Eyjan
Laugardaginn 31. janúar 2026 19:09

Björg Magnúsdóttir. Mynd/aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björg Magnúsdóttir, stjórnmálafræðingur og fjölmiðlakona, bar sigur úr býtum í oddvitaprófkjöri Viðreisnar í Reykjavík sem fram fór í dag. Um var að ræða rafræna kosningu þar sem allir meðlimir í Viðreisn, eldri en 16 ára og með lögheimili í Reykavík, höfðu kosningarétt. Alls voru um 2934  á kjörskrá en alls greidu 2109 atkvæði í prófkjörinu. Kjörsóknin nam því 72 prósentum.

Fjórir buðu sig fram sem oddvitaefni : Signý Sigurðardóttir, Björg Magnúsdóttir, Róbert Ragnarsson og Aðalsteinn Leifsson.

Niðurstöður prófkjörsins urðu þessi.

1. Björg Magnúsdóttir 1.011 atkvæði

2. Aðalsteinn Leifsson, 587 atkvæði

3. Róbert Ragnarsson 479 atkvæði

4.  Signý Sigurðardóttir, 28 atkvæði

Auð atkvæði voru fjögur talsins.

Greinilegt var að taugatitringur var á lokametrunum en greint var frá því að óánægður flokksmaður hefði tilkynnt framboð Bjargar til kosningastjórnar fyrir brot á kosningareglum flokksins. Var framboði Bjargar gefið að sök að hafa haft samband, með sms-sendingu, við flokksmenn í félagaskrá Viðreisnar sem hefðu beðið um að vera ekki ónáðaðir.  Kjörstjórn hafði í kjölfarið samband við framboðið og krafðist þess að slíkum sendingum yrði tafarlaust hætt.

 

 

Signý Sigurðardóttir, Björg Magnúsdóttir, Róbert Ragnarsson og Aðalsteinn Leifsson gáfu kost á sér til að leiða Viðreisn í Reykjavík
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Fer úr FH í Hauka
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Nína Richter skrifar: Þessi ógeðslegu skjöl

Nína Richter skrifar: Þessi ógeðslegu skjöl
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Titringur magnast í Framsókn – lítt eftirsóknarvert hlutverk næsta formanns

Orðið á götunni: Titringur magnast í Framsókn – lítt eftirsóknarvert hlutverk næsta formanns
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Péturslögmálið

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Péturslögmálið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Æra látins manns

Björn Jón skrifar: Æra látins manns