fbpx
Laugardagur 23.ágúst 2025
Eyjan

Hver er munurinn?

Egill Helgason
Fimmtudaginn 6. október 2005 00:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björn Bjarnason er sakaður um að hafa afskipti af dómskerfinu með því að skrifa eftirfarandi orð á heimasíðu sína, það varð allt vitlaust út af þessu í gær:

„Réttarkerfið hefur ekki sagt sitt síðasta í málinu. Lögheimildir eru til þess, að ákæruvaldið taki mið af því, sem fram hefur komið hjá hæstarétti við frekari ákvarðanir um framhald málsins.“

Hins vegar hefur enginn heyrst kvarta um óeðlileg afskipti af dómstólunum þegar Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sagði á blaðamannafundi í gær:

„Það er alveg ljóst að með því að ríkissaksóknari hefur ákveðið að taka málið til sín liggur það alveg ljóst fyrir að hið svokallaða ákæruvald muni hugsa sig vel um áður en lengra verður haldið í málinu. Og ég tel að það sé mjög gott.“

Hver er munurinn á þessum yfirlýsingum? Má skilja þær þannig að dómsmálaráðherrann sé að hvetja til þess að málinu verði haldið áfram en forsætisráðherrann lýsi þeim vilja sínum að málarekstrinum verði hætt? Eru þeir þá kannski báðir að hafa afskipti af dómsvaldinu? Eða hvorugur?

— — —

Tvö viðskiptablöð sem komu út í morgun fjalla bæði um evruna og er furðu mikill samhljómur milli þess sem þar segir. Markaðurinn, sem fylgir Fréttablaðinu, birtir stóra grein undir fyrirsögninni „Krónan er viðskiptahindrun“, en Viðskiptablaðið er orðið furðu hallt undir evruna undir stjórn nýs ritstjóra, Gunnlaugs Árnasonar. Þar segir meðal annars í leiðara:

„Nú er það svo að Íslendingar nota evruna í vaxandi mæli sem gjaldmiðil í viðskiptum. Við seljum útflutningsvörur okkar og þjónustu erlendis í evrum. Við flytjum inn vörur sem eru verðlagðar í evrum, einnig frá löndum utan evrusvæðisins. Við tökum lán í evrum og við ávöxtum fé okkar í evrum, meðal annars á gjaldeyrisreikningum í innlendum bönkum. Þetta höfum við allt gert án þess að spyrja evrópska myntbandalagið (EMU) leyfis hvort við mættum nota evruna með þessum hætti. Ef við vildum ganga alla leið og taka upp evruna sem lögeyri á Íslandi gætum við stigið það skref án þess að spyrja leyfis. Sú aðgerð er í sjálfu sér einföld. Hún er ekki flóknari en að setja nýja peningaseðla í umferð með nýju verðgildi, eins og gert var á sínum tíma þegar tvö núll voru tekin aftan af krónunni. Og aðgerðin er ekki meira upp á kant við stjórnskipan landsins en aðild okkar að evrópska efnahagssvæðinu (EES) var á sínum tíma. Við ráðum hvorki útliti myntarinnar, evrunnar, né magni í umferð, og hið sama má segja um lög og reglur sem okkur eru sendar vegna aðildarinnar að evrópska efnahagssvæðinu. Við ráðum hvorki fjölda reglugerðanna sem okkur berast né hvað þær innihalda.“

— — —

David Blunkett, ráðherra, atvinnumálaráðherra Bretlands, boðar átak til að koma öryrkjum í landinu út á vinnumarkaðinn. Samkvæmt frétt BBC eru 2,7 milljónir manna á örorkubótum í Bretlandi – Blunkett segir að það séu fjórum sinnum fleiri en fyrir 30 árum. Ráðherrann telur þetta beri vott um galskap í kerfinu, enda hafi læknavísindunum fleygt fram, almennt heilbrigði sé betra og tækni geri fólki kleift að hafa meira frjálsræði um hvernig það hagar vinnu sinni.

Blunkett á það til að vera afdráttarlaus í orðavali og hefur styggt marga þingmenn Verkamannaflokksins með orðum sínum, ekki síst þegar hann segir að með því að fara að vinna muni fólk:

„…ná að sigrast betur á þunglyndi og streitu en með því að sitja heima og góna á sjónvarpið allan daginn.“

>

Fyrst birt: 12. okt. 2005 00:01

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís: Rangt gefið þegar heildsöluverð til hinna minni er hærra en smásöluverðið hjá þeim stóru

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís: Rangt gefið þegar heildsöluverð til hinna minni er hærra en smásöluverðið hjá þeim stóru
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Verður Sjálfstæðisflokkurinn utan valda í nær öllum helstu sveitarfélögunum?

Orðið á götunni: Verður Sjálfstæðisflokkurinn utan valda í nær öllum helstu sveitarfélögunum?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir að ESB-aðild sé engin ógn við sjávarútveginn

Segir að ESB-aðild sé engin ógn við sjávarútveginn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Miðaldra konur í hörtóga á Balí

Nína Richter skrifar: Miðaldra konur í hörtóga á Balí
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Inga nýtur sín á Tenerife en er samt í vinnunni – „Ég er ekki ein löggjafinn“

Inga nýtur sín á Tenerife en er samt í vinnunni – „Ég er ekki ein löggjafinn“