fbpx
Laugardagur 23.ágúst 2025
Eyjan

Stagl

Egill Helgason
Fimmtudaginn 6. október 2005 00:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sumt í amerískum kvikmyndum er orðið jafn einhæft og staglkennt og gömlu íslensku rímurnar. Tökum til dæmis:

Ömurlegur smábær í Texas þar sem fólk hefur ekkert annað að gera en að drekka sig fullt á kvöldin, á krá fullri af vélhjólatýpum. Allir illa klipptir, klæddir í gallabuxnadress. Ekkert á boðstólum nema bjór og skot og sígarettur. Mikið tal um að komast burt og byrja nýtt líf. Brunað um á pallbílum og haldið til á ódýrum mótelum. Þangað til einhver brotnar og gerist raðmorðingi – yfirleitt með auðtrúa kjána í eftirdragi. Kjáninn bíður á mótelinu meðan raðmorðinginn sinnir iðju sinni.

Hvað er maður búinn að sjá margar svona myndir? Eina til viðbótar sá ég núna um daginn. Hún heitir Monster. Nýungin er að þar er raðmorðingin lesbía, en bjáninn sem er með henni er ástkona hennar. Að öðru leyti er hún eins og allar hinar myndirnar. Eins og þetta sé framleitt eftir númerum – moviemaking by numbers.

— — —

Á næstu sjónvarpsstöð er maður kominn á íslenskt sveitahótel – minnir að vissu leyti á félagsheimili. Umhverfið er ekkert sérstaklega fallegt; fólkið ekki heldur. Ungar konur að drekka bjór og gosbjór af stút í heitum potti. Sjónvarpsstöðin sýnir auglýsingar á fimm mínútna fresti.

Svo birtist draumaprinsinn sem þær vilja ná í – hann er smiður. Hefur verið settur í jakkaföt með bindi; bindishnúturinn er of stór, fötin fara honum óþægilega. Þetta er íslenski "bachelorinn" – af einhverjum ástæðum má ekki nota það ágæta orð piparsveinn. Líkt og í svona þáttum í útlöndum gengur þetta mikið út á flatneskjulegt og staglkennt sálfræðiblaður, það er eins og allir hafi fyrir löngu lært fyrirfram til hvers er ætlast af þeim. En þetta er íslenska útgáfan og því eru einstæðar mæður áberandi.

Allt er þetta sérlega kauðskt og sveitalegt. Eins og fólkið sé á árshátíð á Kópaskeri eða Breiðdalsvík – eða bara í Grafarvoginum. Sem er auðvitað bara ágætt. Miklu betra en ef þetta væri voða smart. Smiður og einstæð móðir – það væri ekki amaleg útkoma úr íslenska bachelornum.

— — —

Pétur Gautur málari er í viðtali í Séð & heyrt, básúnar að hann sé sjálfstæðismaður og fer með rulluna um að vinstri menn ráði í listinni. Kaupa menn virkilega málverk eftir stjórnmálaskoðunum? Ég held ekki. Man þó að Hannes notaði málverk eftir Pétur Gaut sem bakgrunn í þáttaröðinni Maður er nefndur. Verkið var álíka dautt og þættirnir.

Clint Eastwood fór um daginn og keypti sér íslensk málverk. Valdi sér meðal annars myndir eftir Húbert Nóa og Georg Guðna. Clint er repúblíkani, en ég hef ekki hugmynd um hvar Húbert og Georg Guðni standa í pólitík. Skyldi hann hafa spurt?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís: Rangt gefið þegar heildsöluverð til hinna minni er hærra en smásöluverðið hjá þeim stóru

Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís: Rangt gefið þegar heildsöluverð til hinna minni er hærra en smásöluverðið hjá þeim stóru
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Verður Sjálfstæðisflokkurinn utan valda í nær öllum helstu sveitarfélögunum?

Orðið á götunni: Verður Sjálfstæðisflokkurinn utan valda í nær öllum helstu sveitarfélögunum?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir að ESB-aðild sé engin ógn við sjávarútveginn

Segir að ESB-aðild sé engin ógn við sjávarútveginn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Miðaldra konur í hörtóga á Balí

Nína Richter skrifar: Miðaldra konur í hörtóga á Balí
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Inga nýtur sín á Tenerife en er samt í vinnunni – „Ég er ekki ein löggjafinn“

Inga nýtur sín á Tenerife en er samt í vinnunni – „Ég er ekki ein löggjafinn“