fbpx
Fimmtudagur 01.maí 2025
Eyjan

Bolir með Che – eða Thatcher?

Egill Helgason
Föstudaginn 8. október 2004 00:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ungir frjálshyggjumenn hafa sett upp vefsíðu til minningar um alþýðuhetjuna Che Guevara, en mynd þessa íkons prýðir skyrtuboli margra ungmenna. Þarna er staðhæft að hann hafi verið versta fól. Síðan hefur yfirskriftina Che – tískufyrirbærið og morðinginn.

Á ungkratavefnum skodun.is er þessu fagnað en líka hvatt til þess að þeir sem ganga í bolum með mynd af frú Margréti Thatcher skoði sinn gang, hún hafi verið siðleysingi og óbilandi stuðningsmaður fjöldamorðingja.

Ég hef samt ekki séð marga í bolum með mynd af Járnfrúnni. Ganga stuðningsmenn hennar ekki frekar í jakkafötum – kannski í bol innan undir skyrtunni? Þegar ég var í námi í París fyrir mörgum árum bjó ég í sama húsi og ógurlega sæt islensk stúlka sem var í borginni til að læra förðun. Hún gekk í mjög smart gallajakka með risastórri mynd af Maó formanni aftan á. Mér varð á að spyrja hana hver þetta væri? Hún hafði ekki hugmynd um það.

En af því hún var svo fögur þá var það ég sem varð vandræðalegur, ekki hún.

— — —

Skoðun er reyndar mikill ágætis vefur, miklu ferskari en almennt gerist á þeim vefsvæðum þar sem flokkshestarnir hafa tökin. Ungur penni, Vésteinn Valgarðsson, skrifar litla athugasemd um „fjölmenningarsamfélagið“ – það er framhald af pælingum sem hafa verið í gangi þarna á vefnum. Á ég ekki bara að segja að þetta sé eins og talað út úr minu hjarta?

„Ég verð nú að viðurkenna að orðið „fjölmenningarsamfélag“ lætur illa í eyrum mínum. Ekki vegna þess að ég hafi neitt á móti fólki, heldur vegna þess að hugmyndin um „margar menningar“ í einu samfélagi hljómar eins og hálfgerð þversögn í mínum eyrum. Ég sé fyrir mér samfélag með fjölbreyttu fólki, en einni menningu: menningu lýðræðis, umburðarlyndis, manngildis og mannlegrar reisnar. Ég held reyndar að það sé ósköp svipað þeim skilningi sem þeir sem þú kallar „fjölmenningarsinna“ (en ég mundi frekar kalla umburðarlynda) leggja í orðið „fjölmenning“…

— — —

Reykjavíkurakademían heldur fund á morgun, laugardag, og stendur í fundarboði að rædd verði sú „brennandi“ spurning hvort hætta eigi við Káranhjúkavirkjun? Nú hlýtur að teljast næsta einstakt að hætt sé við svona framkvæmd í miðju kafi – það er nú varla gert nema eitthvað mikið komi upp á. Spurningin getur því varla talist mjög brennandi, þótt sumir brenni sjálfsagt ennþá í andanum vegna málsins.

En maður getur þó ekki annað en dáðst að þeim sem halda svona fundi og leggja á sig að bjóða þangað sjálfum Smára Geirssyni að austan. Nema hann skipti um skoðun eins og Páll á veginum til Damaskus:

„Smári biðst afsökunar – vill hætta við allt!“

— — —

Annars er hér skemmtilegur stjórnmálaleikur sem menn geta dundað sér við um helgina um helgina. Við getum kallað það „Litla stjórnmálaprófið“. Ég ætla ekki að gefa upp hver var útkoman hjá mér – maður gæti lent í því að vera dreginn í dilka. Látum nægja að segja að ég sé ekki repúblikani.

Litla stjórnmálaprófið

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Dýralæknar, starfseiður þeirra og blóðmerahaldið

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Dýralæknar, starfseiður þeirra og blóðmerahaldið
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ásmundur sendir flokksfélögum sínum pillu – „Forystan hér í bæ kom mér út af listanum“

Ásmundur sendir flokksfélögum sínum pillu – „Forystan hér í bæ kom mér út af listanum“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Hanna Katrín Friðriksson: Landbúnaður getur blómstrað – má ekki víkja um of frá lögmálum markaðarins

Hanna Katrín Friðriksson: Landbúnaður getur blómstrað – má ekki víkja um of frá lögmálum markaðarins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Margir vilja Guðlaug Þór í forystu í borginni – út með alla núverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Margir vilja Guðlaug Þór í forystu í borginni – út með alla núverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hanna Katrín: Veiðigjöld eiga ekki að byggja á innanhússverði hjá fiskvinnslu og veiðum sem eru undir sama hatti

Hanna Katrín: Veiðigjöld eiga ekki að byggja á innanhússverði hjá fiskvinnslu og veiðum sem eru undir sama hatti
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Egill afi og Grettir taka stúdentinn

Óttar Guðmundsson skrifar: Egill afi og Grettir taka stúdentinn