fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
Fréttir

Birgir Ómar er látinn

Ritstjórn DV
Mánudaginn 9. febrúar 2026 08:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Birgir Ómar Haraldsson, framkvæmdastjóri Norðurflugs, er látinn, 71 árs gamall. Greint er frá andláti hans í Morgunblaðinu í dag en hann lést eftir veikindi á líknardeild Landspítalans þann 7. febrúar síðastliðinn.

Birgir fæddist 24. janúar 1955 og ólst hann upp í Vogahverfinu. Hann lauk stúdentsprófi frá Tækniskólanum árið 1974 og nam svo skipaverkfræði við Háskólann í Strathclyde í Skotlandi þaðan sem hann lauk námi árið 1981.

Hann lauk svo meistaranámi í viðskipta- og flutningafræði frá City University Business School í London árið 1987 og síðar námi í verðbréfamiðlun og fasteignamiðlun.

Birgir kom víða við á ferli sínum í atvinnulífinu og starfaði meðal annars hjá Hafskip og sem rekstrarstjóri og framkvæmdastjóri Jökla. Hann tók svo við starfi framkvæmdastjóra Norðurflugs árið 2008, elsta og stærsta þyrlufyrirtækis landsins þar sem hann starfaði með konu sinni, Hrafnhildi Jóakimsdóttur.

Birgir kvæntist Guðbjörgu Eggertsdóttur árið 1975 og eignuðust þau tvo syni og eina dóttur, Eggert Odd, Harald Inga og Lindu Rós. Árið 1995 kvæntist hann Hrafnhildi sem átti dótturina Katrínu Ellu sem hann leit ávallt á sem dóttur sína. Barnabörn Birgis eru ellefu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Svíi sem grunaður er um að hafa tekið þátt í að kveikja í bíl lögreglukonu stefndi íslenska ríkinu

Svíi sem grunaður er um að hafa tekið þátt í að kveikja í bíl lögreglukonu stefndi íslenska ríkinu
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Eiríkur segir að íslensk tunga muni styrkjast við inngöngu í Evrópusambandið – Nefnir dæmi

Eiríkur segir að íslensk tunga muni styrkjast við inngöngu í Evrópusambandið – Nefnir dæmi
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Flóknar erfðadeilur gerðu allslausum manni afar erfitt fyrir – Fékk áheyrn að nýju

Flóknar erfðadeilur gerðu allslausum manni afar erfitt fyrir – Fékk áheyrn að nýju
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Finnsku fiðlurokki spáð sigri í Eurovision

Finnsku fiðlurokki spáð sigri í Eurovision