fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
433Sport

Enn og aftur vendingar í hinu stormasama hjónabandi – Hjákonan sendi þessi skilaboð á eiginkonuna aðeins til að valda henni vanlíðan

433
Mánudaginn 9. febrúar 2026 08:30

Walker og Annie Kilner, eiginkona hans.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kyle Walker, fyrrum leikmaður stórliða Manchester City, Tottenham og AC Milan og nú Burnley, á von á sínu fimmta barni með eiginkonu sinni Annie Kilner eins og fram kom um helgina.

Annie er sögð eiga von á barninu í júní, en þau tilkynntu fjölskyldu og nánum vinum tíðindin yfir jólahátíðina. Par­ið á fyrir fjóra syni.

Lauryn Goodman

Hjónaband Walker og Kilner hefur verið þyrnum stráð. Snemma árs 2024 kom í ljós að Walker hafði eignast dóttur með áhrifavaldinum Lauryn Goodman, á sama tíma og hann var giftur Kilner. Goodman hafði áður eignast son með varnarmanninum þegar hjónin voru í stuttri pásu, en upp komst um annað barnið þegar hún sendi Annie skilaboð á annan í jólum 2023.

„Þetta braut Annie algjörlega niður,“ segir heimildamaður enskra miðla og bætir við að Walker hafi verið rekinn af heimilinu og skilnaðarferli hafið. Málið varð enn eldfimara þegar Goodman fór að hjóla í Walker á samfélagsmiðlum. Enskir miðlar segja að skilaboðin frá Goodman til Kilner hafi aðeins verið til að valda henni vanlíðan.

Walker flutti tímabundið til Ítalíu og lék með AC Milan til að stíga úr sviðsljósi fjölmiðla. Hann sneri svo heim og hafa hann og Kilner unnið að því að styrkja hjónabandið. „Þau hafa þurft að vinna gríðarlega mikið í trausti og samskiptum,“ segir heimildamaður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

KA staðfestir komu Djuric

KA staðfestir komu Djuric
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Courtois hringdi í Kinsky og segir frá því sem fór þeirra á milli

Courtois hringdi í Kinsky og segir frá því sem fór þeirra á milli
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Albert með sigurmark í lokin – Slakt hjá Crystal Palace

Albert með sigurmark í lokin – Slakt hjá Crystal Palace
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Elías og félagar með glæsilegan sigur í Nottingham

Elías og félagar með glæsilegan sigur í Nottingham
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Mótherji Tottenham hjólar í Igor Tudor

Mótherji Tottenham hjólar í Igor Tudor
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Erlendur áhrifavaldur hafður að háði og spotti eftir heimsókn til Íslands – Myndband

Erlendur áhrifavaldur hafður að háði og spotti eftir heimsókn til Íslands – Myndband
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Vill burt frá Manchester United í sumar

Vill burt frá Manchester United í sumar
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Dyche meðvitaður um áhuga Tottenham – Tudor stýrir líklega á Anfield

Dyche meðvitaður um áhuga Tottenham – Tudor stýrir líklega á Anfield