fbpx
Laugardagur 18.apríl 2026
Pressan

Segir að þessir drykkir geti aukið líkurnar á elliglöpum

Pressan
Sunnudaginn 8. febrúar 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alzheimerssjúkdómurinn er algengasta form elliglapa og leggst á milljónir manna um allan heim. Hann þróast hægt og bítandi og hefur áhrif á minnið og heilann.

Sarabh Sethi, bandarískur læknir, sagði í myndbandi á TikTok að ákveðnir drykkir geti haft áhrif á líkurnar á að fá elliglöp þrátt fyrir að rannsóknir hafi ekki skilað afgerandi niðurstöðum varðandi þetta. Sanook skýrir rá þessu.

Sykur og efnaskipti – Sethi benti að sögn Sanook á íþróttadrykki sem dæmi um mjög sykraða drykki. Þeir innihalda einnig oft næstum engar trefjar og þessi blanda getur valdið því að blóðsykurmagnið aukist mjög hratt. Með tímanum getur þetta valdið insúlínónæmi.

Margar rannsóknir hafa sýnt fram á tengsl elliglapa og neyslu sykraðra drykkja en rétt er að hafa í huga að hér er um að ræða tengsl en ekki beina orsök.

Alóhól og svefn – Alkóhól er nefnt til sögunnar vegna áhrifa þess á svefn. Góður svefn er mikilvægur fyrir heilann því hann hjálpar til við að hreinsa úrgangsefni úr honum.

National Institute of Health segir að svefnskortur á miðri lífsleiðinni geti aukið líkurnar á að fá elliglöp. Alkóhólneysla getur það leikið óbeint hlutverk því hún dregur úr svefngæðunum.

Sykurlausir gosdrykkir – Sykurlausir gosdrykkir eru oft taldir vera skárri kostur en sykraðir en Sethi sagði að gervisætuefni geti haft áhrif á bakteríuflóru þarmanna og þannig dregið úr starfsgetu heilans.

Í rannsókn, sem var birt í vísindaritinu American Academy of Neurology, kemur fram að fólk sem neytti mikils af gervisætuefnum hafi tapað minni og hugsanagetu hraðar en þeir sem neyttu minna af gervisætuefnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Rekinn korter í HM
Pressan
Í gær

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum
Pressan
Í gær

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður
Pressan
Fyrir 2 dögum

Harmleikur á heimili fyrrverandi vararíkisstjóra í hatrammri skilnaðardeilu

Harmleikur á heimili fyrrverandi vararíkisstjóra í hatrammri skilnaðardeilu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Tilraun til að setja met endaði með harmleik

Tilraun til að setja met endaði með harmleik
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þetta er líklega elsta górilla heims

Þetta er líklega elsta górilla heims
Pressan
Fyrir 4 dögum

Skemmtisiglingin breyttist í martröð og nú hefur 16 ára drengur verið ákærður fyrir að nauðga og bana stjúpsystur sinni

Skemmtisiglingin breyttist í martröð og nú hefur 16 ára drengur verið ákærður fyrir að nauðga og bana stjúpsystur sinni