Ofurfyrirsætan Emily Ratajkowski vakti heldur betur athygli þegar hún deildi mjög djarfri mynd af sér á Instagram.
Á myndinni er Emily alveg nakin en eiginmaður hennar, Sebastian Bear-McClard, hefur vandlega staðsett hendur sínar svo Emily myndi ekki brjóta gegn reglum Instagram.
https://www.instagram.com/p/B-iyx03JwFF/
Myndin hefur heldur betur slegið í gegn undanfarna daga. Það hafa yfir 2,4 milljón manns líkað við hana og fjölmiðlar á borð við Daily Mail fjallað um hana.
Ofurfyrirsætan deilir reglulega djörfum myndum á Instagram. Fyrir viku síðan deildi hún mynd af sér naktri á bak við gluggatjöld.
https://www.instagram.com/p/B-UWOL7pTGf/