fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Fréttir

Vandræðalegt fyrir Elon Musk – Útreikningar DOGE algjört bull

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 26. febrúar 2025 22:00

DOGE þarf að læra á reiknivél.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Niðurskurðardeild Elon Musk (DOGE) hefur eytt fimm stærstu „sparnaðaraðgerðunum“ sem kynntar voru með pompi og prakt í síðustu viku. Engu að síður þykist deildin hafa sparað 65 milljarða dollara, þó að það sé ekki tilgreint hvernig.

Dagblaðið New York Times greinir frá þessu.

Í síðustu viku birti DOGE lista yfir opinbera samninga sem ætti að rifta og aðgerðir til sparnaðar. Átti þetta að spara bandaríska ríkinu formúgu og var mikið gert úr þessu.

Nú hefur DOGE hins vegar strokað út fimm stærstu „sparnaðarverkefnin“ eftir að New York Times og fleiri fjölmiðlar bentu á villur í útreikningunum.

DOGE heldur því fram að stofnunin hafi sparað bandarískum skattborgurum 65 milljarða dollara, eða 9 þúsund milljarða íslenskra króna. Þessi tala var nýlega hækkuð þó að sparnaðarverkefnin fimm hafi horfið af síðunni. Engar skýringar hafa verið gefnar á þessum útreikningum.

„Kvittananaveggurinn“ svokallaði á síðu DOGE er eini staðurinn þar sem tilkynningar um störf stofnunarinnar koma fram. Fimmta verkefnið var strokað þaðan út á þriðjudag. Villurnar sem hafa fundist á þessum kvittanavegg eru slíkar að miklar efasemdir hafa vaknað um heilindi og störf DOGE, sem þegar hefur ráðist í fjöldauppsagnir og niðurskurð víðs vegar í kerfinu.

Sparnaðaraðgerðirnar fimm

8 milljarða dollara samningur í innflytjenda og tollamálum. Samningurinn reyndist aðeins vera 8 milljóna dollarar. Heildarútgjöld innflytjenda og tollamálastofnunarinnar (ICE) eru 8 milljarðar þannig að þessi útreikningur er illskiljanlegur.

Þrír 655 milljón dollara samningar í þróunaraðstoð Bandaríkjanna. Þetta reyndist vera aðeins einn samningur en ekki þrír. Þá reyndist sparnaðurinn ekki vera nema 18 milljónir dollara.

232 milljón dollara niðurskurður í almannatryggingakerfinu. DOGE taldi að samningurinn lyti að kynhlutlausri skráningu í tryggingakerfinu. Í raun var það aðeins lítill hluti af samningnum sem sneri að því. Sparnaðurinn reyndist því aðeins vera rúmlega 0,5 milljón dollara.

Fleiri villur

Elon Musk og DOGE eru alls ekki hætt að reyna að finna leiðir til að spara í kerfinu og samninga til að rifta. Hefur nokkrum samningum verið bætt við í þessari viku.

Enn virðast hins vegar útreikningarnir vera byggðir á sandi og bandarískir fjölmiðlar eru sífellt að finna villur.

Meðal annars í stórri „sparnaðaraðgerð“ upp á 1,9 milljarða dollara í fjármálaráðuneytinu. New York Times hefur þegar greint frá því að þeim samningi hafi þegar verið sagt upp, í haust þegar Joe Biden var forseti.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn