fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
Fókus

„Einn af helstu kvikmyndahöfundum sögunnar og maður sem bjó til ný viðmið í sjónvarpi“

Jakob Snævar Ólafsson
Fimmtudaginn 16. janúar 2025 20:16

David Lynch árið 2007. Mynd: Thiago Piccoli - CC BY 2.0, Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski kvikmyndagerðarmaðurinn David Lynch er látinn 78 ára aldri.

Lynch fór eigin leiðir við listsköpun sína og fylgdi ekki meginstraumnum í Mekka bandarískrar kvikmyndagerðar, Hollywood. Hann sagði sjálfur að hann væri fremur undir áhrifum evrópskra kvikmyndaleikstjóra fremur en bandarískra. Lynch sagði evrópskar kvikmyndir hreyfa mun meira við innstu kimum sálar hans en kvikmyndir landa hans. Var hann undir áhrifum frá t.d. Federico Fellini, Jean-Luc Godard og Ingmar Bergman.

Kvikmyndir Lynch voru oftar en ekki draumkenndar og súrrealískar. Meðal þekktustu verka hans er hin sannsögulega Elephant Man frá 1980 en fyrir hana var Lynch tilnefndur til óskarsverðlauna sem besti leikstjórinn. Aðrar þekktar myndir eru t.d. spennumyndin Blue Velvet frá 1986, rómantíska dramamyndin Wild að Heart frá 1990 en fyrir hana hlaut Lynch Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes og spennumyndin Mullholland Drive frá 2001.

Lynch er einnig minnst fyrir sjónvarpsþættina Twin Peaks sem sýndir voru á árunum 1990-1991 en þættirnir hlutu frábæra dóma og hafa öðlast stóran sess í menningarsögunni.

Egill Helgason fjölmiðlamaður minnist Lynch meðal annars með eftirfarandi orðum á Facebook síðu sinni:

„Einn af helstu kvikmyndahöfundum sögunnar og maður sem bjó til ný viðmið í sjónvarpi með Twin Peaks. Blessuð sé minning hans.“

Hugmyndin er aðalmálið

Lynch kom til Íslands 2009 en hann og Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi þekktust vel en sá síðarnefndi kom meðal annars að framleiðslu Twin Peaks og fleiri verka Lynch. Egill tók viðtal við Lynch í Íslandsheimsókn hans. Aðaltilgangurinn með heimsókninni var að kynna Íslendinga fyrir innhverfri íhugun en Lynch ræddi þó einnig list sína við Egil.

Lynch fékkst einnig við myndlist og tónlist en Egill spurði hann hvort kvikmyndalistin væri ástríða lífs hans. Því svaraði Lynch meðal annars á eftirfarandi hátt:

„Stundum verðum við ástfangin af hugmyndum okkar.“

Um stílinn yfir kvikmyndum hans sem oftast er kallaður Lynch-stíllinn sagði Lynch við Egil:

„Ég segi alltaf að maður fái hugmynd. Segjum svo að maður skrifi hana niður og hún verði að kvikmyndahandriti. Sagt er að láti maður tíu leikstjóra fá sama handrit fái maður 10 mismunandi kvikmyndir. Það er eitthvað til í því að hugmynd fari í gegnum vél. Vélin hefur einhver áhrif en það er samt hugmyndin sem knýr skipið áfram.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Aðdáendur agndofa eftir að leikkonan birti mynd af sér með ketti sínum – „Þetta er ekki í lagi“

Aðdáendur agndofa eftir að leikkonan birti mynd af sér með ketti sínum – „Þetta er ekki í lagi“
Fókus
Í gær

Khloé Kardashian greinir frá öllum fegrunaraðgerðum sem hún hefur gengist undir

Khloé Kardashian greinir frá öllum fegrunaraðgerðum sem hún hefur gengist undir
Fókus
Fyrir 2 dögum

Klámstjarna látin aðeins 28 ára gömul

Klámstjarna látin aðeins 28 ára gömul
Fókus
Fyrir 2 dögum

Steingerður leitaði til spákvenna sem reyndist versta tímasóun – „Stundum yrði lífið léttbærara með þeirri vitneskju og stundum erfiðara“

Steingerður leitaði til spákvenna sem reyndist versta tímasóun – „Stundum yrði lífið léttbærara með þeirri vitneskju og stundum erfiðara“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vikan á Instagram – Ber að ofan í „Sexico“

Vikan á Instagram – Ber að ofan í „Sexico“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Málið sem skók Pólland: Morðinginn afhjúpaði sig óvart í skáldsögu

Málið sem skók Pólland: Morðinginn afhjúpaði sig óvart í skáldsögu