

Arsenal hefur áhuga á því að sækja Dan Ashworth sem yfirmann knattspyrnumála ef marka má fréttir dagsins. Hann var rekinn með skömm frá Manchester United á laugardag.
Arsenal leitar að manni í starfið eftir að Edu sagði upp störfum til að taka við starfi fyrir eiganda Nottingham Forest.
United beið eftir Ashworth í fimm mánuði en hann var rekinn eftir fimm mánuði. Hann kostaði því United 177 milljónir króna plús laun fyrir fimm mánaða starf.
United lagði mikið á sig til að landa Asworth, sem áður var í starfi hjá Newcastle, og kemur brottför hans því á óvart. Ashworth styrkti liðið nokkuð vel í sumar en gengið á leiktíðinni hefur verið skelfilegt það sem af er.
Ashworth var ekki sáttur með uppsögn sína og segja enskir miðlar að beita hafi þurft afli til að koma honum út af Old Trafford um helgina.
Ashworth var rekinn eftir tap gegn Nottingham Forest um helgina en forráðamenn United voru ósáttir með störf hans.