fbpx
Föstudagur 06.júní 2025
Pressan

Svona langan tíma tekur það ketti að gleyma eiganda sínum

Pressan
Sunnudaginn 22. desember 2024 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kettir og eigendur þeirra tengjast oft sterkum böndum þrátt fyrir ófyrirsjáanlegt eðli katta. Hjá mörgum er köttur nauðsynlegur hluti af lífinu því þeir færa okkur gleði og ró.

Rannsókn leiddi í ljós að kettir fara ekki í gegnum lífið án þess að hugsa sitt. Þeir eru með flókna minnisgetu sem gerir þeim kleift að mynda skammtíma- og langtímaminningar. Cyberciencecenter skýrir frá þessu.

Þeir geta því munað samskipti, upplifanir og fólk. Nú eru vísindamenn að reyna að kortleggja hvernig og hversu lengi þessar minningar geymast síðan. Þetta virðist ekki vera eins skammur tími og margir kunna að halda.

Með skammtímaminninu geta kettir varðveitt upplýsingar í allt að 16 klukkustundir en þessi hæfileiki takmarkast oft við einstaka atburði eða smáatriði sem gleymast fljótt. Köttur getur til dæmis munað staðsetningu hlutar í skamman tíma en ef hluturinn hefur ekki tilfinningalegt gildi, þá rennur hann kettinum fljótlega úr minni. Það eru því greinileg takmörk á skammtímaminni þeirra.

En langtímaminni þeirra er mun flóknara og dýpra. Þegar köttur tengist fólki eða upplifunum sterkum tilfinningalegum böndum, þá getur hann varðveitt minningar um það í allt að 10 ár.

Þeir geta munað eftir fólki, hljóðum og ákveðnum stöðum, sem hafa sett mark sitt á líf þeirra með jákvæðum eða neikvæðum hætti.

Þetta þýðir að ef fólk hefur myndað náin tengsl við köttinn sinn, þá má það búast við að hann muni eftir þeim þrátt fyrir langan aðskilnað.

En hvað varðar gesti og ókunnuga, þá gleymir kötturinn þeim á 16 til 24 klukkustundum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Rússar sitja uppi með gamla peningaseðla

Rússar sitja uppi með gamla peningaseðla
Pressan
Fyrir 2 dögum

Bono skefur ekki utan af því og segir Elon Musk bera ábyrgð á dauða 300.000 manns

Bono skefur ekki utan af því og segir Elon Musk bera ábyrgð á dauða 300.000 manns
Pressan
Fyrir 3 dögum

Dularfulla peningamálið – Fundu 140 milljónir grafnar á landareigninni

Dularfulla peningamálið – Fundu 140 milljónir grafnar á landareigninni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Neitaði alla tíð að hafa myrt eiginkonu sína – svo bað hann son sinn um að gera sér hrottalegan greiða

Neitaði alla tíð að hafa myrt eiginkonu sína – svo bað hann son sinn um að gera sér hrottalegan greiða