

Roy Keane fyrrum fyrirliði Manchester United var ekki sáttur með sína menn gegn Arsenal í gær.
Horfði hann á leikinn í beinni á Sky Sports ásamt vinum sínum þeim Gary Neville, Jamie Carragher og Ian Wright.
Keane var sérstaklega ósáttur með innkomu Marcus Rashford í leiknum.
„Rashford er mættur inn, hann er hræðilegur í einföldum hlutum leiksins. Sjáið meðal annars skallann þarna,“ sagði Keane.
Keane sagði svo að líklega myndu ensk blöð pikka þessi ummæli hans upp og það gerðist.
„Þetta er ömurlegt, þetta er gjörsamlega glatað. Þeir sparka boltanum bara út af,“ sagði Keane svo skömmu síðar.