fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
433Sport

Klopp sendir frá sér myndband – Ítrekar að hann sé ekki að svíkja loforðið sem hann gaf Liverpool

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 9. október 2024 12:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég er mjög spenntur fyrir þessu,“ segir Jurgen Klopp sem hefur verið ráðinn yfirþjálfari yfir öllum félögum sem Red Bull á, má þar nefna RB Leipzig, Red Bull Salzburg og New York Red Bulls.

Tíðindin koma nokkuð á óvart en Klopp sagði upp starfi sínu hjá Liverpool og ætlaði sér í frí. Hann ítrekar það í færslu sinni að hann ætli sér ekki að þjálfa strax.

Klopp hefur störf 1. janúar en þýskir miðlar segja að klásúla sé í samningi hans við Red Bull. Má hann taka við þýska landsliðinu ef slíkt tilboð kemur.

„Fyrir nokkrum mánuðum sagði ég að ég sæi það ekki fyrir mér að vera á hliðarlínunni en ég elska fótbolta,“ segir Klopp.

Hann segist elska fótbolta og þetta sé gott tækifæri fyrir hann að læra. „Ég vil nýta reynsluna mína, það hafa þjálfarar náð meiri árangri. Ég hef komið liði upp, ég hef verið í fallbaráttu, ég hef barist um titla. Stundum hefur það gengið og stundum ekki.

„Ég vil læra meira, þegar þú ert þjálfari með leik á þriggja daga fresti þá er það lítið. Ég er mjög spenntur en núna fer ég aftur í sumarfrí.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Albert sagður ósáttur og vilja burt – Eitt stórlið sagt skoða málið

Albert sagður ósáttur og vilja burt – Eitt stórlið sagt skoða málið
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Rekinn úr vinnu á sama tíma og hundurinn hans hvarf

Rekinn úr vinnu á sama tíma og hundurinn hans hvarf
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Fjögur ensk lið til í að semja við reynsluboltann

Fjögur ensk lið til í að semja við reynsluboltann
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Yfirmaðurinn færir Chelsea vondar fréttir

Yfirmaðurinn færir Chelsea vondar fréttir
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum
Góð tíðindi af Orra
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Valtýr hellir sér yfir mann sem kom til Íslands á dögunum – „Það á bara að snúa honum við og senda hann úr landi“

Valtýr hellir sér yfir mann sem kom til Íslands á dögunum – „Það á bara að snúa honum við og senda hann úr landi“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Fer frítt frá Liverpool

Fer frítt frá Liverpool
433Sport
Í gær

Krefst þess að snerting við annan leikmann verði skoðuð þremur mánuðum eftir skelfilegt banaslys unga mannsins

Krefst þess að snerting við annan leikmann verði skoðuð þremur mánuðum eftir skelfilegt banaslys unga mannsins
433Sport
Í gær

Allt annað hljóð í Maresca

Allt annað hljóð í Maresca