fbpx
Mánudagur 12.maí 2025
433Sport

Nistelrooy sagður stýra miklu – Leggur mikið upp úr því að ræða við Rashford

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 30. júlí 2024 14:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hollenskur hreimur heyrist hátt á æfingasvæði Manchester United þessa dagana en þar er ekki um að ræða Erik ten Hag.

Daily Mail fjallar um það að Ruud van Nistelrooy nýr aðstoðarmaður Ten Hag sé mikið að stýra æfingum.

Nistelrooy mætti til starfa í sumar og er byrjaður að láta til sín taka.

„Van Nistelrooy er mjög upptekin að stýra æfingum og fá leikmenn til að færa boltana út á kant og koma honum svo fyrir. Maðurinn þekkir það að skora mörk, hann skoraði 150 mörk í 219 leikjum,“ sagði í umfjöllun Daily Mail.

Van Nistelrooy er sagður góður í mannlegum samskiptum og að hann eigi núna í miklum samskiptum við Marcus Rashford.

Rashford átti ömurlegt síðasta tímabil og er það von Ten Hag að Nistelrooy geti komið og kveikt líf í kappanum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

England: City missteig sig gegn versta liðinu – Flottur sigur Everton

England: City missteig sig gegn versta liðinu – Flottur sigur Everton
433Sport
Í gær

Besta deildin: Vestri aftur á toppinn eftir góðan sigur

Besta deildin: Vestri aftur á toppinn eftir góðan sigur