fbpx
Mánudagur 12.maí 2025
433Sport

Komið á hreint hvers vegna Foden fór heim

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 26. júní 2024 15:16

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú fyrir skömmu greindi enska knattspyrnusambandið frá því að Phil Foden hefði yfirgefið herbúðir enska landsliðsins tímabundið af fjölskylduástæðum. Það er nú komið á hreint hvað er um að vera.

Foden ætlar að vera viðstaddur fæðinguna hjá þriðja barni hans og kærustu hans Rebecca Cooke og er því farinn heim.

Foden, sem er á mála hjá Englandsmeisturum Manchester City, byrjaði alla leiki Englands í riðlakeppninni. Enska liðið vann sinn riðil á 5 stigum þrátt fyrir afar ósannfærandi frammistöðu í öllum leikjum.

England á leik í 16-liða úrslitum á sunnudag en andstæðingurinn verður annað hvort liðið sem hafnar í þriðja sæti D eða E riðils. Það er búist við því að Foden verði mættur í þann leik.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

England: City missteig sig gegn versta liðinu – Flottur sigur Everton

England: City missteig sig gegn versta liðinu – Flottur sigur Everton
433Sport
Í gær

Besta deildin: Vestri aftur á toppinn eftir góðan sigur

Besta deildin: Vestri aftur á toppinn eftir góðan sigur