fbpx
Sunnudagur 14.desember 2025
433Sport

Mikið húllumhæ fyrir leik á Laugardalsvelli á morgun

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 3. júní 2024 16:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á morgun tekur íslenska kvennalandsliðið á móti Austurríki í mikilvægum leik í undankeppni EM. Liðin gerðu jafntefli úti í Austurríki fyrir helgi og sigur á morgun myndi styrkja stöðu Íslands í baráttunni um að komast beint á EM mikið. Það verður mikið fjör fyrir leik á Laugardalsvelli á morgun.

Af vef KSÍ
A landslið kvenna tekur á móti Austurríki í undankeppni EM 2025 á Laugardalsvelli á þriðjudag.

Leikurinn hefst klukkan 19:30 en fyrir leik verður Fan Zone á vellinum. DJ Dóra Júlía og Herra Hnetusmjör munu sjá um að keyra upp stemninguna fyrir leik, matarvagnar verða á svæðinu og hægt verður að fá andlitsmálun. Einnig verður landsliðsvarningur til sölu.

Fan Zone-ið opnar klukkan 17:00 og þarf miða á leikinn til að hafa aðgang að því. 

Tryggið ykkur miða á landsleikinn á tix.is, mætum tímalega á Laugardalsvöll á þriðjudaginn og styðjum stelpurnar okkar til sigurs!

Miðasalan á Tix.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Benzema boðar óvænta endurkomu

Benzema boðar óvænta endurkomu
433Sport
Í gær

Stefán skefur ekki af því – „Held að það sé ekki hægt að finna mikið auðvirðilegri persónu“

Stefán skefur ekki af því – „Held að það sé ekki hægt að finna mikið auðvirðilegri persónu“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Albert uppljóstrar um nöfn stórliða sem drógu sig úr viðræðum við hann eftir að kærumálið kom upp

Albert uppljóstrar um nöfn stórliða sem drógu sig úr viðræðum við hann eftir að kærumálið kom upp
433Sport
Fyrir 2 dögum

Salah snýr aftur

Salah snýr aftur