fbpx
Sunnudagur 22.júní 2025
Fókus

Siggi Hlö snýr aftur í útvarpið – Óvenjuleg símtöl úr pottinum

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 30. maí 2024 12:40

Sigurður Hlöðversson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurður Hlöðversson, eða Siggi Hlö, eins og sumarbústaða- og heitrapottaaðdáendur ásamt fleirum þekkja hann best, yfirgaf útvarpið í ágúst árið 2022. 

Siggi hafði þá haldið úti þættinum vinsæla Veistu hver ég var? í rúm 14 ár á Bylgjunni.

Sjá einnig: Siggi Hlö hættir með útvarpsþáttinn vinsæla – „Ég er því sáttur að hætta á toppnum“

Siggi fór í ferðabransann, en nú hefur hann snúið aftur í útvarpið, þó ekki með þátt, heldur í útvarpsauglýsingum. Þar rifjar Siggi upp gamla takta. 

Í auglýsingunum er íslenska lúsmýið í sumarbústað “að fá sér”. Og eins og saumaklúbbarnir forðum daga, þá hringir lúsmýið í þáttinn til Sigga til að skila kveðjum. Stemningin er hins vegar aðeins minni hjá lúsmýinu, því það er aðallega að kvarta yfir „slæmum móttökum“ í bústaðnum. 

Lúsmýið sem heyrist “öskra og hlæja” í bakgrunninum er úr alvöru upptökum frá saumaklúbbum sem hringdu í þáttinn hans Sigga á Bylgjunni. Siggi á 14 ára safn af þáttum og símtölum frá saumaklúbbum. 80’s tónlistin sem er notuð í auglýsingunni var búin til með gervigreind.

Siggi Mygga 1
play-sharp-fill

Siggi Mygga 1


Siggi Mygga 2
play-sharp-fill

Siggi Mygga 2


Siggi Mygga 3
play-sharp-fill

Siggi Mygga 3


Siggi Mygga 4
play-sharp-fill

Siggi Mygga 4

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Stórleikarinn er sjötugur og barn átta á leiðinni

Stórleikarinn er sjötugur og barn átta á leiðinni
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þekkt leikkona þóttist vera 12 ára stúlka og leiddi níðinga í gildru

Þekkt leikkona þóttist vera 12 ára stúlka og leiddi níðinga í gildru
Fókus
Fyrir 6 dögum

Færeyingur er með mikilvæga spurningu til Íslendinga

Færeyingur er með mikilvæga spurningu til Íslendinga
Hide picture