fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Kallar hertogaynjuna hræsnara sem sé að kafna úr græðgi – „Vandi Meghan er hvað hún virðist eltast ofstækisfullt við peninga“

Fókus
Fimmtudaginn 23. maí 2024 12:00

Meghan Markle Mynd: Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hertogaynjan Meghan Markle er þess vafasama heiðurs aðnjótandi að vera gífurlega óvinsæl hjá breskum fjölmiðlum en á sama tíma eitt vinsælasta fréttaefni þeirra. Að þessu sinni eru miðlar að velta sér upp úr meintri græðgi fyrrum leikkonunnar sem er kölluð fordæmalítil og óseðjandi, en það er konunglegi rithöfundurinn Tim Quinn sem er að leggja fram þá kenningu að hertogaynjan sé með peningaglampa í augunum.

„Hún sér ekkert að því að vera ofurrík og verja tíma sínum með þeim ríku og frægu á sama tíma og hún segist einbeita sér að því að hjálpa fátækum og jaðarsettum. Einn fyrrum vinur hjónanna vill meina að Meghan þrái samtímis að vera Marie Antoinette og Móðir Teresa,“ sagði rithöfundurinn í samtali við The Mirror.

Quinn vitnar þar til fyrrum Frakklandsdrottningar, Marie Antoinette sem var síðasta drottning landsins og varð að tákni stéttaskiptingar og auðvaldsins í frönsku byltingunni. Drottningin tapaði eftirminnilega lífinu þegar hún var sakfelld fyrir landráð og hálshöggvin árið 1793. Quinn vitnar svo til dýrlingsins Mary Teresa Bojaxhiu, nunnu sem var þekkt fyrir góðverk sín. Móðir Teresa stofnaði góðgerðasamtök sem opnuðu heimili fyrir HIV-smitaða, berklaveika og fyrir fólk með holdsveiki. Samtökin ráku eins mataraðstoð og hreyfanlegar heilsugæslur svo eitthvað sé nefnt. Hún var sæmd friðarverðlaunum Nóbels árið 1979.

Meghan og eiginmaður hennar, Harry Bretaprins, eru búsett í Bandaríkjunum þar sem þau hafa reynt að byggja upp viðskiptaveldi. Quinn segir að helsti vandi hjónanna sé hversu gráðug Meghan er.

„Vandi Meghan er hvað hún virðist eltast ofstækisfullt við peninga. Þó að hjónin séu verulega efnuð þá finnst Meghan það aldrei nóg því hún býr í nágrenni við ríkari stórstjörnur“

Quinn segir þetta ákveðna hræsni í hertogaynjunni sem opinberlega leitist eftir að vera talskona fátækra og jaðarsettra. Hún tali eins fyrir umhverfinu en ferðast svo með dýru einkaflugi og klæðist hönnunarfatnaði sem flestir geta aðeins látið sig dreyma um að eignast. Rithöfundurinn segir þessa hræsni hafa verið áberandi í ferð hjónanna til Nígeríu á dögunum. Mikil fátækt sé í landinu og því ósmekklegt að hertogaynjan hafi klæðst þar rándýrum fatnaði og skartgripum og auk þess haft tíðari fataskipti en eðlilegt þyki.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrirsætan fékk ekki líftryggingu því hún er of þung

Fyrirsætan fékk ekki líftryggingu því hún er of þung
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr
Fókus
Fyrir 4 dögum

Einstæð móðir óttast að senda þrettán ára soninn allsberan í sturtuklefa á Íslandi

Einstæð móðir óttast að senda þrettán ára soninn allsberan í sturtuklefa á Íslandi
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Það er svo óskiljanlegt að hún skuli ekki skilja hvað hún er að fara illa með sig og bara hætta“

„Það er svo óskiljanlegt að hún skuli ekki skilja hvað hún er að fara illa með sig og bara hætta“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short
Fókus
Fyrir 5 dögum

Húslestur með Sunnu Dís

Húslestur með Sunnu Dís