fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Fullyrðir að Liverpool þurfi að leita annað í sumar – Mun semja í sama landinu

Victor Pálsson
Laugardaginn 23. mars 2024 15:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Liverpool þarf líklega að leita annað en til Bayer Leverkusen í sumar til að finna arftaka Jurgen Klopp.

Frá þessu greinir blaðamaðurinn virti Florian Plettenberg sem vinnur fyrir Sky Sports í Þýskalandi.

Xabi Alonso er sterklega orðaður við Liverpool en Jurgen Klopp mun yfirgefa félagið í sumar – Alonso er fyrrum leikmaður liðsins.

Samkvæmt heimildum Sky er Bayern Munchen þó sannfært um að Alonso muni skrifa undir þar frekar en á Englandi í sumar.

Plettenberg segir að Bayern sé nú þegar búið að ræða við Alonso og að hann muni hafna Liverpool til að taka við þýska stórveldinu.

,,Ef hann ákveður að fara frá Leverkusen í sumar þá mun hann semja við Bayern Munchen og ekki Liverpool,“ segir Plettenberg.

Alonso lék einnig með Bayern á sínum ferli sem leikmaður og hefur gert stórkostlega hluti við stjórnvölin hjá Leverkusen.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“