fbpx
Fimmtudagur 16.maí 2024
Fókus

Ragnhildur segir annað fólk það besta og versta fyrir taugakerfið – „Í meira stuði en miðaldra saumaklúbbshópur á sjöunda búbbluglasi“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 13. mars 2024 19:30

Ragga Nagli Mynd: Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Samböndin okkar skipta máli. Því það allra besta fyrir taugakerfið okkar er annað fólk. En samtímis er annað fólk það allra versta fyrir taugakerfið,“

segir Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðingur og einkaþjálfari, betur þekkt sem Ragga nagli, í pistli sem hún birti á Facebook-síðu sinni.

„Því við getum annaðhvort eytt tíma með fólki og sósað okkur uppúr og niðurúr í vellíðunarhormónum af serótónín, dópamíni og oxýtócini. Erum sultuslök og glöð eins og sprengsaddur hvítvoðungur eftir brjóstagjöf. Upplifum ást, samþykki, samkennd og finnumst við vera og gera alveg nóg.

Eða við getum átt sambönd og samskipti sem marinera okkur í kortisóli, adrenalíni og noradrenalíni, tætt og tjásuð í streitukerfinu. Stöðugt í varnarham með alla vöðva grjótspennta tilbúin í baráttu, og taugarnar þandar í ótta og kvíða.

Samböndin okkar geta annað hvort sett taugakerfið lóðrétt á felguna föst í spennitreyju, eða vafið því í dúnmjúka sæng með heitt kakó á kantinum og Kenny G á fóninum.“

Ragga nagli segir að þess vegna þurfum við að velja af kostgæfni hverjum við eyðum tíma með svo „taugakerfið okkar sé í meira stuði en miðaldra saumaklúbbshópur á sjöunda búbbluglasi í sumarbústaðaferð.

Sía út fólk sem mergsýgur batteríið okkar og vanvirða mörkin okkar ítrekað.  Eru á sjálfshátíð í hvert skipti sem þið hittist og spyrja ekkert út í þína hagi.

Eyða miklum tíma með fólki sem nærir og gefur orku, hlustar af athygli, veitir ráðleggingar ef við biðjum um það og tékkar reglulega á hvernig við höfum það.

Hverju myndir þú bæta við þennan lista?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 23 klukkutímum

Svona leit hún út fyrir breytingarnar

Svona leit hún út fyrir breytingarnar
Fókus
Í gær

Flutti í sumarbústað við Meðalfellsvatn eftir stórleik í þýskum þáttum

Flutti í sumarbústað við Meðalfellsvatn eftir stórleik í þýskum þáttum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Frænka kærustunnar minnar er ólétt – og ég er pabbinn

Frænka kærustunnar minnar er ólétt – og ég er pabbinn
Fókus
Fyrir 2 dögum

Viðurkenndi loksins að hafa notað megrunarlyf – „Allir halda að þetta sé Ozempic, þetta er annað lyf“

Viðurkenndi loksins að hafa notað megrunarlyf – „Allir halda að þetta sé Ozempic, þetta er annað lyf“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vikan á Instagram – „Þetta er mæðradagslúkkið í ár“

Vikan á Instagram – „Þetta er mæðradagslúkkið í ár“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég upplifði mig sem vandamál eða að ég væri fyrir, það er ekki góður staður að vera á“

„Ég upplifði mig sem vandamál eða að ég væri fyrir, það er ekki góður staður að vera á“