fbpx
Mánudagur 13.maí 2024
Fréttir

Örlagasaga Garðars – „Illa innrættur einstaklingur rústaði lífi hans“

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 11. mars 2024 16:30

Villikettir í Reykjanesbæ og nágrenni deildu sorgarsögu Garðars.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samtökin Villikettir í Reykjanesbæ og nágrenni deila á samfélagsmiðlum sorgarsögu kattar sem fannst síðastliðið sumar en var að glíma við mikinn og falinn vanda. Kötturinn hét Garðar og hafði verið skotinn með byssu.

Í júní í fyrra fengu samtökin ábendingu um haltan kött og í júlíbyrjun náðist hann loksins í búr.

„Hann virtist þá vera alveg snælduvitlaus, hvæsti bara og urraði á okkur og vorum við ekki viss um tíma hvort um væri að ræða villing eða vergangskisa,“ segir í færslunni. „Var farið með hann til dýralæknis til að skoða á honum fótinn og var hann svæfður á meðan svo hægt væri að skoða hann almennilega. Ekkert kom út úr þeirri heimsókn og var talið að mögulega væri hann kominn með smá gigt sem hefði verið verri úti í kuldanum þar sem hann var jú nokkuð fullorðinn og á vergangi.“

Um mánuði síðar var aftur farið með köttinn, sem átti eftir að fá nafnið Garðar, til dýralæknis í geldingu og alls herjar yfirferð. Eftir það fór Garðar að sýna á sér aðra hlið og á endanum brotnaði skelin sem hann var búinn að setja upp. Úr skelinni kom að sögn Villikatta þessi svakalegi kúrubangsi sem bræddi hjörtu allra viðstaddra.

Stykki undir húð

Um tíma virtist Garðar ekkert vera haltur eða að neitt amaði að honum. Síðar fór hann hins vegar að naga á sér fótinn og sýna af sér undarlega hegðun. Til að byrja með lá grunur um að hann væri með eitthvað ofnæmi og væri einfaldlega að klóra sér.

„En svo fann sjálfboðaliði fyrir einhverju hörðu undir húðinni á honum og var þá pantaður strax tími fyrir hann hjá doksa og hann skoðaður og fjarlægt „eitthvað stykki“ undan húðinni á honum,“ segir í færslunni.

Á röntgen sást að hann var stórskaddaður á öxl.

Strax lék grunur á að þetta stykki gæti verið hluti úr byssukúlu. Ekki þurfti að leita lengi á netinu til að finna mynd af byssukúlu sem passaði nákvæmlega við stykkið sem tekið var úr Garðari, sem í var dælt bæði sýkla og verkjalyfjum eftir að þetta fannst.

Var Garðari komið fyrir á fósturheimili þar sem hann var dekraður mikið og haft stíft eftirlit með lyfjagjöfinni. Síðan fór hann á heimili þar sem hann átti að vera til framtíðar.

„En nú fyrir stuttu byrjaði hann að haltra, slappast upp og vildi alls ekki vera einn,“ segir í færslunni.

Faldi sársaukann

Farið var með hann á aðra dýralæknastofu og hann sendur í röntgenmyndatöku, en það hafði ekki verið gert áður. Kom þá í ljós að öxlin á honum var stórsködduð eftir höggið á kúlunni. Hafði Garðar verið sárkvalinn allan þennan tíma en harkað af sér, eins og kettir eigi til að gera.

Voru aðeins tveir möguleikar í stöðunni. Annað hvort að taka löppina af honum eða svæfa hann. Áður en það var gert var fengið annað álit sérfræðings, sem taldi Garðar vera orðin of slappan fyrir svo stóra aðgerð. Var því ekkert annað í stöðunni en að Garðar fengi að sofa svefninum langa.

Garðar faldi sársaukann eins og kettir eiga til að gera.

„Elsku fallegi strákurinn okkar sem átti svo allt það besta skilið en einhver illa innrættur einstaklingur rústaði lífi hans með því að skjóta hann,“ segir í færslu Villikatta.

Að sögn samtakanna er þetta ekki í fyrsta skipti sem þau fá í hendur kött sem í finnast byssukúlur eða högl. Bent er á að það sé ólöglegt að skjóta ketti og hvetja samtökin fólk til að tilkynna slíkt til lögreglu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tíkin Tita var drepin á Laugarási – „Tímaspursmál hvenær þessir hundar ráðast á eitthvað annað“

Tíkin Tita var drepin á Laugarási – „Tímaspursmál hvenær þessir hundar ráðast á eitthvað annað“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Brottfararstyrkir til umsækjenda um alþjóðlega vernd margfölduðust á síðasta ári

Brottfararstyrkir til umsækjenda um alþjóðlega vernd margfölduðust á síðasta ári
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Auði brugðið við að fylgjast með blindfullum útskriftarnemum dimmitera í miðbænum – „Þar ælir hann og ælir, milli þess sem hann missir meðvitund“

Auði brugðið við að fylgjast með blindfullum útskriftarnemum dimmitera í miðbænum – „Þar ælir hann og ælir, milli þess sem hann missir meðvitund“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rekstur Base Parking virðist vera að sigla í strand

Rekstur Base Parking virðist vera að sigla í strand
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Víðir fékk að heyra það frá fréttakonu Stöðvar 2 eftir pistil sem hann skrifaði

Víðir fékk að heyra það frá fréttakonu Stöðvar 2 eftir pistil sem hann skrifaði
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Saka Rússa um að nota efnavopn

Saka Rússa um að nota efnavopn
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sökuð um að stela tæplega níu milljónum frá Grunnskólanum á Þórshöfn og félagsmiðstöð í Langanesbyggð

Sökuð um að stela tæplega níu milljónum frá Grunnskólanum á Þórshöfn og félagsmiðstöð í Langanesbyggð
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Svört skýrsla um rekstur hestamannafélagsins Fáks – Fullyrðingar um svartar launagreiðslur, ólöglegt vinnuafl og óeðlileg vildarkjör – Formaður félagsins segir skýrsluna einhliða og ekki gefa rétta mynd

Svört skýrsla um rekstur hestamannafélagsins Fáks – Fullyrðingar um svartar launagreiðslur, ólöglegt vinnuafl og óeðlileg vildarkjör – Formaður félagsins segir skýrsluna einhliða og ekki gefa rétta mynd
Fréttir
Fyrir 4 dögum
Eldgosinu er lokið